Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1983, Side 16
16
JÓN STEFFENSEN
Videnskabernes Selskabs Historie 1742-1842. Kh. 1843, bls. 116-
119).
Af þeim fjórum númeruðu eintökum af Flora Danica, sem í upphafi
voru send til íslands, eru með vissu þrjú þeirra þar enn heil og í
upprunalegum búningi, nefnilega No 39, Bessastaða- eða stift-
amtmannseintakið. Af því eru 47 hefti í Amtsbókasafninu á Akureyri
og 5 (48.—51. og 3. hefti aukabindis) í Landsbókasafni íslands. Um
feril þessa eintaks er það vitað, að þegar Stiftisbókasafnið fékk
bókasafn Landsuppfræðingarfélagsins 1833, var það með þeim
skilmála, að tvítök gengju til bókasafns Norður- og Austuramtsins, og
„þannig fékk það þá meðal annars hið ágæta verk Flora Danica (nr.
39)“ (Jón Jacobson: Landsbókasafn íslands 1818-1918. Minningar-
rit, Reykjavík 1919-20, bls. 45).
Eintak No. 40, Skálholtsstiftiseintakið, er nú allt í Landsbókasafni
utan 51. heftis, sem er í Náttúrufræðistofnun íslands. Um það segir
Jón Jacobson í áður greindu riti: „Þá voru á þessu ári [1902], að
fengnu samþykki biskups, afhent Landsbókasafninu til geymslu af
biskupsdæminu hin merku rit: Jespersens Graduale frá 1573 og
eintak þess af „Kongeloven“ 1665 og loks „Flora Danica“, sem að
líkindum er sama eintakið, sem afhent var Steingrími biskupi til
bráðabirgða“ (bls. 182). Trúlega dregur Jón þá ályktun af því, að á
forblaði 40 fyrstu heftanna af No 40 er stimplað með fjólubláu bleki
„ísl. Biskupsdæmi“. Þessi stimpill er einnig á 3 heftum eintaks No 39
(48., 49. og 3. h. aukabindis), en á engum öðrum heftum þeirra
þriggja eintaka, sem hér um ræðir. Hann er þannig ekki notaður á
þau Flóruhefti, sem út koma eftir árið 1843 (40. h.) og fram til ársins
1871 (48. h.), og síðasta heftið, sem hann er á, er gefið út 1877
(49. h.). Hér er um venjulegan gúmmístimpil að ræða, en þeir komu
ekki til skjalanna fyrr en á síðari helmingi 19. aldar (stimpill sömu
gerðar og „ísl. biskupsdæmi" er nú í Nesstofusafni, „Læknaskólinn“,
en sá skóli var stofnaður 1876), þannig að 40 fyrstu heftin eru
stimpluð löngu eftir að þau komu út, sennilega um 1877. En á því
kann ég enga skýringu, hvers vegna 41.-47. hefti sleppa undan
stimplinum, þegar hin eru stimpluð, aðra en þá, að verustaður þeirra
þá hafi ekki verið hinn sami.
Hólastiftiseintakið, No 42, er nú í Náttúrufræðistofnun íslands, allt
nema 51. hefti, sem er í Landsbókasafni. Eftir sameiningu biskups-
stólanna og skóla þeirra mun það hafa farið suður í hinn eina lærða
skóla, sem þá var í landinu, Bessastaðaskóla, og má segja, að það hafi