Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1983, Síða 17

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1983, Síða 17
FLORA DANICA Á ÍSLANDI 17 verið við hæfi, því að fyrstu ár hans var þar fastur kennari (1805-07) ágætur grasafræðingur, Guttormur Pálsson (1775-1860), síðar prest- ur að Hólmum og í Vallanesi, en honum gefur Sveinn Pálsson herbarium sitt með bréfi dags. 8. maí 1807 (ÍB. 2-4 8vo). Skólanum hefur Flóran fylgt til Reykjavíkur, því að úr bókhlöðu Lærða skólans er hún komin í núverandi samastað. Þann rugling, sem nú er á einstökum heftum milli eintaka, má eflaust rekja til áranna 1879-81, er flestum helztu bókasöfnum Reykjavíkur var hrúgað saman í bókhlöðu Lærða skólans, meðan beðið var eftir, að Alþingishúsið yrði fullgert til að taka við Stiftisbókasafninu. Af eintaki landlæknisembættisins, No 41, hef ég engar heimildir aðrar en þær, sem Sveinn læknir Pálsson veitir, en tel líklegt, að hætt hafi verið að halda því við eftir að Stiftisbókasafnið tók til starfa, og eintakið þá sent eiganda þess, eins og gert er ráð fyrir á forblaði heftana (sjá hér síðar). Þetta samrýmist þeim ummælum Grönlunds grasafræðings, að hér á landi séu þrjú eintök af Flora Danica (Chr. Grönlund, Islands Flora, Kh. 1881, bls. 5). Hann á þá eflaust við númeruð eintök, um þau vissi liann frá fyrstu hendi, þar sem hann ferðaðist hér á landi 1868 og 1876 á vegum Flóruútgáfunnar. Búningur allra heftanna er sá sami. Lengst framan af brúnt, upphleypt kálfskinnsband með ríkulegri blindþrykkingu, og á rauðum reiti gyllt „Flora / Danica / Fasc. 1“ og á svörtum reiti næst neðan við „No/39“, 40 eða 42. En á seinni heftunum er slétt kálfskinnsband með reitum og gyllingum eins og á þeim fyrri. Hvert hefti er gegnumdregið og bandið innsiglað á fremra eða oftar aftara spjald. Framan titilblaðs kemur forblað, sem á er prentað: í efstu línu „No“, síðan kemur eyða til að skrifa í, og nokkru neðar heldur svo prentaða málið áfram: „Det giores vitterligt for alle dem, som denne Bog til hænde kommer og vedkommer. — At det allernaadigst har behaget Hans Kongelige Majestæt at lade uddele i begge Rigers Stifter og sine ovrige Lande i Europa endeel Exemplarer af det Botaniske Verk Flora Danica kaldet, som paa allerhoieste Befaling bliver udgivet afden Kongelige Professore Botanices, og det saaledes, at de stedse skal være til Brug og Nytte for een eller anden af Geistlige og Verdslige, som elske Plante-Læren, legge Vind paa den og vil træde i Correspondence med Professoren, baade til Nytte for den Kongelige Botaniske Anstalt, saa og til dette Verks egne Formerelse og Forbedring, samt at der tillige skal bæres al Omhue for, at samme 2
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur
https://timarit.is/publication/280

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.