Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1983, Side 21
FLORA DANICA Á ÍSLANDI
21
Gilsbakka, Tunguheiðar, Fljótshlíðar, Gufuness, Odda, Múkaþver-
ár, Eyjafjarðar, Eyrarbakka, Reykjahvers í Ölfusi. Og við Koenigia
Islandica er gerð þessi athugasemd: „Sama haust íluttum við Koenig
hana bádir til K[iöben]havn, kalladi eg hana Petræa arcoa og þ[ad]
sama nafn féll h[onu]m nógu vel, en þ[a]r þetta var nýfundin urt,
describ[erede] Linnæus hana upp á sinn máta, og Koenig vin
sín[u]m til æru nefhdi hana h[an]s nafni hv[er]iu hún hereftir mun
halda.“
Hér koma fram athyglisverðar upplýsingar um tvö tímabil í ævi
Jóns Péturssonar, sem heimildir eru sagnafáar um, þ. e. frá árslokum
1763 til hausts 1765, er hann siglir til náms í Hafnarháskóla, og frá
því hann kemur til íslands 1772 til þess er hann fær veitingu fyrir
læknishéraði Norðlendingafjórðungs 1775. Johan Gerhard König
(1728-1785) safnaði grösum hér á landi frá vori 1764 til hausts 1765 á
vegum Flora Danica útgáfunnar, og er mjög líklegt, að tengsl hans
við Jón stafi af því, að hann hafi verið fylgdarmaður Königs á ferðum
hans um landið og þeir síðan orðið samferða utan. Þessi kynni Jóns af
plöntusöfnun fyrir Flora Danica útgáfuna ásamt læknismenntun hans
mætti hafa leitt til þess, að þegar hann hyggur til heimferðar 1772,
hafi það orðið að samkomulagi við útgáfuna, að hann sendi henni
sjaldséðar plöntur og kæmi 7.—10. hefti Flórunnar til réttra aðila.
Eftir heimkomuna beinist hugur hans mjög eindregið að grasafræði,
hann býðst til að kenna hana í Skálholtsskóla, en Finnur biskup var
því mótfallinn og vafasamt, hvort til þess hafi komið. 1773 sótti Jón til
stiftamtmanns um að mega kenna tveimur eða fleiri piltum grasa-
fræði og garðyrkju, jafnframt því sem hann ynni að Flora Islandica
gegn 100 rd launum. Það hlaut ekki heldur meðbyr (Hannes
Þorsteinsson: Æfir lærðra manna, Jón Pétursson). En þetta sýnir,
hvernig standa muni á þessu grasasafni hans, sem eftir varð í Nesi,
þegar hann flyzt norður 1775.
Með 11. hefti, sem út kom 1775, verður breyting á niðurlagi
forblaðsins svo: „Efter Hans Kongelige Majestæts allernaadigste
Befaling / Kiobenhavn“ - og nú er það útgefandi, sem undirritar.
Martin Vahl (1749—1804) gefur út 16,—21. hefti 1787—1799, og þegar
hann tekur við útgáfunni, er enn komin óregla á sendingu heftanna til
íslands, og það mun að undirlagi hans, að Sveini er falið að koma
skikki á Flora Danica eintökin í landinu. Þannig hefur O. F. Múller
aðeins ritað undir 11. og 12. hefti af eintaki No 40 og 11. hefti af No
42, en öll hin undirritar M. Vahl og flest skömmu áður en Sveinn fer