Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1983, Page 41
TIL ÍSLENDINGA
41
norðurslóðir, þegar þeir höfðu verið hraktir á brott úr hinum hlýju heimkynnum
sínum.
„Baldur hinn fagri er fallinn," sagði Longfellow, og það er nú komið á daginn.
Baldur hinn hvíti var einungis goðsöguleg skuggamynd Hvíta-Krists, skotið á tjald
úr heiðinni myndavél. Höður blindi var París í dulargervi. Nanna, er Baldur unni
hugástum, er aðeins Oinone. Loki er Lucifer. Angantýr jarl er hvorki meira né
minna en Kentaur, með keltnesku forskeyti. Loðyn [Hlöðyn], móðir Þórs, er engin
önnur en Latona. Og hvar ætlar þetta að lenda? Þegar Völva reynist blátt áfram vera
Sibylla, að brottfelldu fyrstu atkvæði nafns hennar, hvaða tryggingu höfum vér þá
fyrir því, að oss haldist á Þór, Óðni og Frey? Mun ekki einhver málfræðingurinn
komast á snoðir um, að þeir séu einnig falsguðir, séu ekki ættaðir að norðan, heldur
komnir sunnan af Indlandi eða einhverju öðru fjarlægu landsvæði?
í alvöru að tala kenni ég sárt til með yður skáldunum. Því að um hverja ætlið þér
nú að syngja? Um hreystiverk hverra munuð þér kveða? Þegar Baldur er horfinn á
braut, hvern getið þér þá framar lofsungið? Og höfundar óbundna málsins eru líka
sviptir hálfum heiðri. Hér eru gríðarmikil bindi eftir þá Keyser, Grimm, Simrock og
Finn Magnússon um gömlu norrænu eða germönsku goðafræðina. Úr þeim verður
að rífa margar blaðsíður. Dr. Maurer er raunar vís til að kalla þessar nýju
niðurstöður Eddurannsókna „furðulegar uppgötvanir" og „sennilegar blekkingar“.
Ég vildi óska, að ég gæti hitt yður að nýju og rætt þetta allt við yður. En það get ég
ekki og verð því að láta sitja við það að andvarpa með yður yfir bliknandi ljóma
hinna fornu goðsagna.
Verið þér blessaðir,
yðar ævinlega
trúfastur vinur
Willard Fiske
Til Gríms Thomsens
67, Behrenstrasse.
Berlin.
March 3, 1880.
My dear Sir,
Your letter was most grateful, and I should answer it at greater
length, if the Icelandic steamer had not caught me in the midst of my
preparations for a voyage across the briny deep.
My friend, the Hon. John Jay Knox, Controller of the Currency,
writes me that he has sent you, at my request, some documents about
our banking system. I trust that you have received them. I think that
the system contains some suggestions likely to be of use to Iceland.
I perfectly agree with you in the opinion that Iceland’s develop-
ment must come from the inside. Nevertheless I am in favor of any
outside efforts or influences which may act as an impulse in moving