Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1983, Síða 43
TIL ÍSLENDINGA
43
Ég hef sent [Birni] Ólsen einu eintök mín af nokkrum amerískum tímaritum með
greinum mínum um íslenzk efni. Þér munuð rekast þar á margar syndir, bæði óvilja-
og ásetningssyndir. Ágrip mitt um Jón Sigurðsson í N.Y. Tribune stendur langt að
baki grein Maurers um hann í Augsburger Allgemeine Zeitung. Ólsen hefur þá grein
og getur sýnt yður hana, fáið þér hana ekki annars staðar frá.
Par sem ég hef ekkert sérstakt dálæti á skozku eyjunum, væri ég fegnastur að trúa
því, að Sæmundar-Edda sé blátt áfram og einfaldlega íslenzk, en ég viðurkenni, að
rökin gegn þeirri kenningu séu að mínu viti virkilega yfirgnæfandi. Mér þykir líkt og
dr. Maurer mikið koma til nýjustu rannsókna dr. Bugge. Ég vildi auðvitað feginn
hafa Baldur áfram sem einn húsguða minna, en hann er að verða, að því er virðist, of
þokukenndur til þess að trú verði á hann fest.
Bókmenntafréttir, og þá sérstaklega tímanlegar tilkynningar um væntanlegar
bækur, væru mér mjög kærkomnar. Ég hef lesið og tvílesið síðustu eintök ísafoldar.
Heimilisfang mitt héðan í frá verður Ithaca, New York, United States, via Leith,
Scotland.
Til Benedikts Gröndals skálds
Berlin, Mch 51
My dear Sir,-
Good news! My friend Professor Ward of Rochester, New York, a
distinguished scientific man, says that as soon as he goes home in
April or May, he will send a microscope to the College, provided he
can receive in return some specimens (obzidian, and other things)
which he wants from Iceland. He will write you. He can also send
you many natural history specimens.
Ever yours,
W.F.
Kæri herra.
Góðar fréttir! Vinur minn, Ward prófessor í Rochester, New York, ágætur
vísindamaður, segir, að hann muni við heimkomu sína í apríl eða maí senda
skólanum [Lærða skólanum] smásjá, fái hann í staðinn nokkur sýnishorn (obzidian
og annað sitthvað), sem hann þarfnast frá íslandi. Hann mun skrifa yður. Hann
getur einnig sent yður mörg náttúrufræðileg sýnishorn.
Paris, Aug. 20, 1881
My dear Benedikt Gröndal,
You said to me once when I had the pleasure of seeing you in
Reykjavík that the department of natural history stood greatly in
need of a microscope.
Bréfspjaldið er án ársetningar, en póststimpill er Berlín 1880.