Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1983, Síða 46
46
BRÉF WILLARDS FISKES
A few days ago I received a letter from Mr. Reeves. He is thinking
of bringing his mother, sister and brother-in-law to spend next winter
in Florence.
Be sure to give me kindest remembrances to all my old Icelandic
friends.
Faithfully yours,
W. Fiske
Minn kæri Matthías Jochumsson!
Bréf yðar kom eins og óvæntur hressandi norðangustur á þessum heitu ítölsku
hásumardögum. Ég vonaði aðeins, að pósturinn heíði fært mér yður sjálfan í staðinn
fyrir pistil yðar og ég þá getað sýnt yður borg skáldanna, þeirra Dante og Boccaccios.
Þorvaldur Thoroddsen fór um Flórenz fyrir nokkrum vikum. Þegar þér hittið
hann, segið honum, að ég muni aldrei, aldrei, aldrei fyrirgefa honum það að skrifa mér
ekki frá Leipzig eða annars staðar frá, að hann hygðist koma við. Svo hittist á, að ég
var burtu úr bænum hálfan mánuð og hann greip í tómt. En ekkert hefði verið
hægara fyrir mig en hverfa aftur til bæjarins, og það hefði ég gert með glöðu geði,
hefði ég vitað um Ítalíufor hans. Ég tárfelldi hér um bil af vonbrigðum, þegar ég sá
nafnspjaldið hans.
Ég vænti þess, að skólahúsmálið yðar nái fram að ganga, veit, að það gerir það
fyrir ötulan atbeina yðar. Ég vona, að ég geti einhvern tíma sent yður framlag til
þess. En eins og nú er ástatt, hefur fjárhagur minn þrengzt verulega, vegna þess að
mörg amerísk járnbrautarfélög láta undir höfuð leggjast að greiða arð, og neyðist ég
því til að fara mjög leiðinlega spart með.
Safn mitt af íslenzkum ritum er orðið æðimikið, þó að ég búist ekki við, að það
komist í nokkurn samjöfnuð við safn Jóns Sigurðssonar, sem nú er varðveitt í
Landsbókasafninu ykkar.
Faðir minn lézt í fyrra háaldraður, 84 ára gamall, en móðir mín er hérna hjá mér í
Flórenz.
Ég vonast til þess eitthvert sumarið að heimsækja ísland að nýju, ef heilsa og
fjárráð leyfa, og þá ætla ég að koma og sjá yður og Oddann. Megi sá dagur vera
skammt undan!
Ég fékk fyrir nokkrum dögum bréf frá Reeves. Ffann er að hugsa um að koma með
móður sinni, systur og mági til Flórenz og sitja hér næsta vetur.
Verið nú vissir um að skila beztu kveðjum til allra vina minna á íslandi.