Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1983, Page 59
TIL ÍSLENDINGA
59
Ef eg gæti fengið eitt eða tvö góð töíl tefld af Grímseyingum, sem sé
tveim beztu taflmönnum á eyjunni, þá mundi mér ánægja að láta
birta þau í „í Uppnámi“. Eg treysti því, að unglingar allir á eyjunni
læri að teíla skák og að skáktaílið framvegis verði aðalskemmtun
eyjarbúa.
Eg skrifaði yður fyrir skömmu stutt bréf á dönsku, og vona eg, að
þér hafið fengið það.
Með mikilli virðingu
yðar einlægur
Willard Fiske1
Síra Matthías Eggertsson
í Grímsey.
Kaupmannahöfn 14/9 - 01.
Kæri síra Matthías,
Jeg hefi í dag skrifað hr. Ingvari Guðmundssyni og mun hann
eflaust sýna yður það brjef. Jeg gat þess þar í, að á Akureyri lægju
fleir(i) pakkar til yðar og annara í Grímsey, sumpart á pósthúsinu
þar eða hjá afgreiðslumanni póstgufuskipanna. Meðal pakkanna eru
sumir, sem sérstaklega eru til yðar og þar á meðal skákborð og
skákmenn og aðrir munir er heyra til skáktafli. Ef nú eigi væri brúk
fyrir þessa muni í Grímsey nú sem stendur, mætti ef til vill geyrna þá í
eða með bókasafninu þar til það sem nú er í brúki er úr sjer gengið.
Jeg skrifa hr. Eggert Laxdal á Akureyri um að senda þessa pakka
til Grímseyjar ef hann gæti. En færi svo að einhverjir Grímseyingar
kæmu til Akureyrar, gætu þeir máske flutt nokkuð af þeim með sjer,
þó náttúrlega ættu þeir að láta aðrar nauðsynjar sínar sitja fyrir.
Af brjefi yðar sje jeg það, að Húsavík muni vera heppilegri fyrir
sendingar til Grímseyjar en Akureyri, en „Ceres“ kemur þar ekki við
nú.
Með beztu kveðju
yðar
Willard Fiske2
1 Undirskriftin m.h. W. Fiskes, en bréfið sjálft m.h. Halldórs Hermannssonar.
2 Aðeins undirskriftin m.h. W. F.