Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1983, Side 71
LANDSBÓKASAFNIÐ 1982
71
HANDRITADEILD Handritakostur Landsbókasafns var í
árslok 13.500 skráð handrit. Fast starfslið
deildarinnar var hið sama og á síðastliðnu ári. Erlingur Brynjólfsson
B.A. vann sem lausráðinn mánuðina júlí og ágúst.
Nú verður getið ýmissa handrita, er Landsbókasafni voru geíin á
árinu.
Börn dr. Finns Sigmundssonar, Erna og Birgir, færðu safninu úr
dánarbúi hans margvísleg gögn, m. a. filmur og aðdrætti í tengslum
við Rímnatal Finns.
Hannes Pétursson skáld afhenti nokkur bréf o. fl. frá Stefáni
Vagnssyni til Finns Sigmundssonar, sem hann hafði fengið að láni
hjá Finni vegna útgáfu bókarinnar Ur fórum Stefáns Vagnssonar frá
Hjaltastöðum, Reykjavík 1976.
Frú Bjarnveig Bjarnadóttir, Reykjavík, gaf úrklippur um myndlist
á árunum 1953-55, möppu merkta Rómarsýningunni umdeildu og
aðra með úrklippum um útför Asgríms Jónssonar ásamt minningar-
greinum. Pessi gjöf kom til viðbótar úrklippusafni því hinu mikla, er
áður var komið og greint var frá í síðustu Arbók.
Handrit þingfrétta Helga Hjörvar á árunum 1933-1958. Solveig
dóttir Helga afhenti. Nokkur ár vantar í eða: 1934, 1936, 1940, 1942,
1946-48, 1951.
Gunnlaugur Þórðarson hrl. færði safninu enn að gjöffjölda bréfa til
Þórðar Sveinssonar yfirlæknis, föður gefanda.
Jón Guðnason cand. mag. aflienti enn ýmis gögn úr dánarbúi föður
síns, dr. Guðna Jónssonar, m. a. gögn varðandi Bergsætt.
Þórhallur Asgeirsson ráðuneytisstjóri afhenti að gjöf bók, bundna í
fögur tréspjöld, með úrklippum úr Winnipegblöðunum Heimskringlu
og Lögbergi 12. nóv. 1941 til 29. apríl 1942. Efni þeirra er allt á ensku
og birtist í sérstökum dálkum blaðanna, er Junior Icelandic League
(síðar Icelandic Canadian Club) annaðist. Hjálmur F. Daníelsson,
um langt árabil afgreiðslumaður tímaritsins Icelandic Canadian,
færði Ásgeiri Ásgeirssyni forseta Islands bók þessa að gjöf til
minningar um komu hans til Winnipeg í september 1961.
Austurríski tónlistarmaðurinn og tónskáldið dr. Franz Mixa, sem
íslendingum er að góðu kunnur vegna margháttaðra starfa að
tónlistarmálum þeirra á árunum 1929—1938, færði 14. júní Lands-
bókasafni að gjöf handrit sitt að óperu í þremur þáttum, er nefnist
Eyvind und sein Weib.