Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1983, Side 72

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1983, Side 72
72 LANDSBÓKASAFNIÐ 1982 Textann sömdu þau Franz Mixa og Katrín Ólafsdóttir og studdust við Fjalla-Eyvind, leikrit Jóhanns Sigurjónssonar, en Franz er einn höfundur sjálfs tónverksins, og tileinkar hann það íslenzku þjóðinni og felur það Landsbókasafni til varðveizlu. Hann kveðst fella aldagömul íslenzk lög og söngva inn í verk sitt og kappkosta, að þau haldi þar sinni upphaílegu gerð í hvívetna. Hann vann að þessu verki síðustu ár sín á íslandi á fjórða áratugnum, en hefur síðan endurskoðað það. Handritið er hið fegursta, skrifað af hinni mestu alúð og vand- virkni. Frú Þórdís Thompson, Riverton, Manitoba, sendi að gjöf fáein bréf til foður hennar, Gunnsteins Eyjólfssonar skálds. Bréfritarar eru Matthías Jochumsson, Guttormur J. Guttormsson og Oddur V. Gíslason. Þjóðhátíðarljóð Asthildar Guðmundsdóttur (síðar Thorsteinsson) 1874. Guðlaugur Jónsson fyrrv. lögregluþjónn skráði. Gjöf Sigurðar Thoroddsens verkfræðings. Ljósrit. Bréfasafn o. fl. úr fórum Rósinkrans ívarssonar frá Kirkjuhvammi í Rauðasandshreppi. Gjöf Halldórs Halldórssonar og Sesselju Hall- dórsdóttur, Álftamýri 58, Reykjavík, um hendur Ara Gíslasonar ættfræðings. Ari Gíslason afhenti ennfremur bréf o. íl. úr fórum Andrésar Ólafssonar hreppstjóra á Brekku í Gufudalssveit. „Den islandske Retshistorie indtil Fristatens Undergang og norsk Lovgivnings Indforelse i det 13de Aarhundrede. Fremstillet af Vilhjálmur Finsen. Einar Sigurðsson háskólabókavörður afhenti úr Háskólabókasafni. Ljósrit. Úr Háskólabókasafni barst einnig vélritað eintak doktorsritgerðar Lúðvíks Ingvarssonar: Refsingar á íslandi á þjóðveldistímanum, í þremur möppum, ennfremur skjöl, er varða „Sjóð til verndar andlegu frelsi íslenzkra rithöfunda“, er fylgt höfðu prentuðum bæklingum eftir Halldór Laxness, sem Auður Sveinsdóttir kona skáldsins lét Háskóla- bókasafni í té. Þá voru ennfremur afhent úr Háskólabókasafni nokkur gögn úr fórum Stefáns Einarssonar prófessors, sendibréf, minnisbækur, mið- ar, auk eintaks af bók Stefáns History of Icelandic Prose Literature, með nokkrum athugasemdum hans við hana. Bréfasafn Stefáns er sem kunnugt er varðveitt í Landsbókasafni, geysimikið að vöxtum.

x

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur
https://timarit.is/publication/280

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.