Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1983, Síða 77
LANDSBÓKASAFNIÐ 1982
77
í stað hans var þá ráðin Hildur Eyþórsdóttir B.A., og tók hún til
starfa 1. september.
Áslaug Agnarsdóttir og Svanfríður Óskarsdóttir gegndu V2 starfi
hvor frá 1. febrúar.
Áslaugu var að eigin ósk veitt lausn frá starfi 1. september, og flyt
ég henni þakkir fyrir vel unnin störf.
í stað hennar var ráðinn JeíTrey Cosser B.A., er verið haíði
lausráðinn í hálfu starfi, þannig að hann gegndi nú fullu starfi frá 1.
september.
Gunnar Skarphéðinsson B.A. vann við afleysingar í aðallestrarsal
sumarmánuðina júní-ágúst.
Stefaníu Júlíusdóttur var að eigin ósk veitt 18 mánaða orlof frá 1.
janúar 1982-30. júní 1983, en hún hugðist þann tíma stunda í New
York framhaldsnám í bókasafnsfræðum og kynna sér þar einkum
tölvuvinnslu í bókasöfnum.
Litið var á fyrstu þrjá mánuði orlofsins sem rannsóknarorlof, og
hélt hún launum þann tíma, en Landsbókasafni var veitt aukaíjár-
veiting, er samsvaraði þriggja rnánaða kaupi hennar.
Skjöldur Eiríksson B.A. var fyrst lausráðinn í V2 stöðu, en síðar
ráðinn samkv. ráðningarsamningi. Verksvið hans var í þjóðdeild
safnsins.
Kolbrún Högnadóttir vann fyrstu 5 mánuði ársins fjórðung úr
starfi, en þá leysti Anna Björk Magnúsdóttir hana af og vann til
hausts. Þær unnu báðar við tölvuinnskrift þjóðbókaskrárinnar á
vegum þjóðdeildar.
Auk þeirra voru lausráðin til starfa í þjóðdeild safnsins Sólveig
Jónsdóttir 10 stundir á viku jan.-apríl og Ulfur Friðriksson 20 stundir
á viku fram til miðs októbers, er hann fór af landi brott til nokkurra
mánaða dvalar. í stað hans var þá ráðin Auður Brynja Sigurðar-
dóttir.
NEFNDASTÖRF OG Undirritaður lét seint á árinu af for-
FERÐIR mennsku í Samstarfsnefnd um upplýs-
ingamál, en var jafnframt falið að sitja
áfram í nefndinni. Formaður næsta tímabil er Einar Sigurðsson há-
skólabókavörður.
Aðalheiður Friðþjófsdóttir var endurskipuð formaður skráningar-
nefndar, en í þeirri nefnd á einnig sæti frá safninu Ólafur Pálmason,