Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1983, Síða 80
80
LANDSBÓKASAFNIÐ 1982
GJÖF ÚR DÁNARBÚI Davíð Björnsson fyrrverandi bóksali í
DAVÍÐS BJÖRNSSONAR Winnipeg lézt þar í borg 30. september
1981. Hann gaf Landsbókasafni á sín-
um tíma bókasafn sitt og hélt síðan áfram að senda safninu bækur og
einkum handrit sín margvísleg. Pá útvegaði hann Landsbókasafni
um langt árabil öll helztu rit, er út komu á vegum íslendinga
vestanhafs eða varðandi þá. Davíð gerði ekki endasleppt við Lands-
bókasafn, því að fyrir andlát sitt ánafnaði hann því í erfðaskrá sinni
500 kanadíska dali, er lögfræðingur dánarbúsins sendi hingað heim í
maí 1982.
SAFNAHÚSIÐ Eins og þeir, sem leið hafa átt framhjá
Safnahúsinu síðustu misseri, hafa veitt
athygli, hefur verið hlynnt stórlega að því að utan, farið yfir alla
glugga, skipt um járn, er farin voru að ryðga, settar í nýjar rúður, þar
sem þær voru brotnar eða sprungnar. Þá hefur verið kíttað með
rúðum, sem margar voru orðnar lausar í, og gluggakarmar allir
grunnmálaðir. Þar sem þakrennur og niðuríoll voru illa farin, var
skipt um hvort tveggja og húsið loks allt málað utan, þ. e. a. s. steins-