Vísbending - 20.12.1996, Blaðsíða 3
Efnisyfirlit
Vetrarsólhvörf.......
Ijóð eftir Einar Benediksson.
Allt annað líf.........5
Viðtal við Jónas H. Haralz sem
Ólafur Hannibalsson tók.
Þegar Pétur Bene-
diktsson var sendur
til Moskvu... .....15
eftir Jakob F. Ásgeirsson.
Forn-íslendingar:
iðnaðarþjóð.. ...21
eftir Helga Skúla Kjartansson.
Ör þróun í tölvu-
heiminum... ..........25
eftirTómas Örn Kristinsson.
Talsmaður efna-
hagsfrelsis... ....29
eftir Jónmund Guðmarsson.
Útgefandi:
Talnakönnun hf.
Borgartúni 23,105 Reykjavík.
Sími: 561 7575.
Ritstjóri og ábm.:
Tómas Örn Kristinsson.
Ritstjórn:
Tómas Örn Kristinsson og
Benedikt Jóhannesson.
Málfarsráðgjöf:
Málvísindastofnun Háskólans.
Forsíðumynd:
Pálmi Guðmundsson.
Umbrot og prentun:
Gutenberg hf.
Upplag:
3.000 eintök.
Öll réttindi áskilin,
rit þetta má eigi afrita
með neinum hætti
án leyfis útgefanda.
[VI
I___!
ÍSBENPING
Jólaspj all
Um nokkurt árabil hefur það verið venja hjá Vísbendingu að
gefa út sérstakt jólablað. í jólablaðinu eru efnistök önnur
en gengur og gerist og er oft leitað til fyrri tíma um efni.
Þetta blað er engin undantekning.
Olafur Hannibalsson blaðamaður ræðir við Jónas H. Haralz fyrr-
verandi bankastjóraLandsbankaíslands um Viðreisnarárin, stjórnmál
og efnahagsmál. Jónas lýsir því hvernig tiltrú á Viðreisnarstjórnina
jókst smám saman eftir því sem á lífdaga hennar leið. Hann skýrir
helstu forsendur aðgerða og framgang stefnumála stjórnarinnar.
Jakob F. Asgeirsson rithöfundur vinnurnú að ævisögu Péturs Bene-
diktssonar,fyrrverandisendiherraogbankastjóra. GreinJakobsfjallar
um tildrög stofnunar sendiráðs íslands í Ráðstjórnarríkjunum í
stríðinu. I greininni eru athyglisverðar upplýsingar um aðdraganda
stofnunar sendiherraembættis og afstöðu Péturs til sendiherrastarfs
í Moskvu. Sumt af þessu efni hefur ekki birst áður á opinberum
vettvangi.
Helgi Skúli Kjartansson leitar enn lengra aftur í tímann eða allt til
landnámstíðar. I grein Helga Skúla er fjallað um útflutning íslendinga
á iðnvarningi á landnámstíð. Helgi Skúli útskýrir af hverju vaðmál
var fremur flutt út en óunnin ull en einnig kemur fram að meðal
útflutningsafurða á þjóðveldistímanum var unnið kattarskinn.
Jónmundur Guðmarsson fjallar um hagfræðinginn Ludwig Von
Mises sem er einn af frumkvöðlum hagfræðinnar. Sumar af kenn-
ingum Von Mises hafa verið umdeildar en ef forsendur þeirra eru
skoðaðar þá standast þær flestar.
Öllu nútímalegra efni er grein um þróunina í tölvuheiminum en
lítið lát er á henni. Rakin eru nokkur dæmi um þróunina og nýjungar
sem eru á döfinni kynntar.
Við sem starfað höfum að Vísbendingu á árinu sendum lesendum
okkar jóla- og nýárskveðjur og þökkum samstarfið á árinu sem er að
líða.
tftebitey jól oy frviMett
Komottcli ái
Sparisjóðurinn í Keflavík
3