Vísbending


Vísbending - 20.12.1996, Blaðsíða 26

Vísbending - 20.12.1996, Blaðsíða 26
ÍSBENDING hraða venjulegs hljómlistargeisladrifs. Náðst hefur sam- komulag um nýtt form á geisladiskum sk. DVD sem geta geymt allt að 4,7 gígabætum en venjulegur geisladiskur í dag geymir um 0,7 gígabæti. Búast má við að nýir diskar komi á markaðinn fljótlega. Þessirdiskarverðaekki aðeins töl vudiskar, heldur er búist við að á þeim verði dreift kvik- myndum í framtíðinni og munu þær vera betri að gæðum en þau myndbönd sem nú eru á markaðnum. Margmiðlunarbúnaður er orðinn staðalbúnaður nýrra tölva. Hljóðkort, hátalarar, míkrófónar, útvarpskortogsjón- varpskort þykja nauðsynleg þeim sem ætla nýta möguleika búnaðarins sem best. Netin geta verið flöskuháls Notkun samskiptaneta til að tengja saman tölvur eða jafnvel tölvukerfi verður sífellt meiri. Sá böggull fylgir þó skammrifi að gagnamagnið í venjulegri tölvu- vinnslu fyrirtækja vex hratt og kostnaður við stækkun netkerfa vex ekki endilega í sama hlutfalli. Stækkun- armöguleikar netkerfa eru oft takmarkaðir og því getur verið þörf á að skipta um lausn þegar mörkunum er náð. Netlausnir geta verið allt frá því að tengja saman einstakar tölvur í litlu fyrirtæki þannig að hægt er að skiptast á skjölum og upp í það að tengja saman mörg smærri net í heildarnet stórfyrirtækis. Hluti net- kerfisins er oft hluti af stýrikerfinu sem keyrt er á tölvunni en einnig skiptasjálfartengingarnarmáli.Það nýjastaersennileganotkun útvarps- bylgja til að tengja saman tölvur. Þá er ekki kapall og tengikort í tölvunum heldur útvarpsmóttakari og sendir. Einnig hafa verið reyndar innrauðar tengingar og eru þær dá- h'tið að ná fótfestu, sérstaklega varð- andi jaðarbúnað svo sem prentara. Stýrikerfin öruggari Samstíga örri þróun vélbúnaðarins hefur orðið mikil framþróun í stýrikerfum. Grafísk notendaskil hafa tekið stórstígum framförum og tengingar nýrra tækja og búnaðarer mun einfaldari en áður. Möguleikar til að stýra aðgangi notenda og rekstri tölvukerfanna fara vaxandi og rekstraröryggi kerfanna er stórbætt. Samhliða þessu eru stýrikerfin frekari á búnað tölvanna, t.d. er fullyrt að Windows NT sem er stýrikerfi fyrir stærri tölvunet þurfi minnst 24 megabæti af innra minni og þurfi 120 megabæti af hörðum diski en Windows 95 þarf 16 megabæti af innra minni og þarf 40 megabæti af hörðum diski. Microsoft hyggst setja á markaðinn nýja útgáfu af stýrikerfi á næsta ári: Windows 97 en ef horft er til yfirlýsingagleði fyrir útgáfu Windows 95 þá geta liðið nokkur ár þar til þessi útgáfa lítur dagsins ljós. Afritun er mikilvæg Mörgum yfirsést mikil vægi afritunar. Flestir gera sér einhverjagreinfyrirmikilvægi tölvunnarogþjón- ustu hennar í rekstri fyrirtækja og stofnana en ekki er víst aðallirhugi að þvíhvaðverðurefbúnaðurinn bregst. Afritun er nauðsynleg og að því ættu heimanotendur einnig að huga. Til afritunar er hægt að fá segulbönd, lausa diska og ýmsa aðra miðla. Athuga þarf að sumar lausnirnar eru ekki endilega komnar til að vera og því er mögulegt að menn dagi uppi með afritunarbúnað sem ekki er hægt að þróa frekar. Fyrirtæki þurfa að huga að því hvað myndi gerast ef stóráfall dynur yfir. Ef bruni eyðilegði tölvubúnaðinn þá þyrfti að vera til neyðaráætlun þar sem annaðhvort væri hægt að fá athvarf hjá einhverjum öðrum eða útvega búnað með hraði. Oft liggur mikið við og hugsanlegt er að slíkt áfall riði fyrirtæki að fullu. Neyðarathvarf hefur verið í boði f takmörkuðum mæli hérlendis. Hugbúnaðurinn þroskast Fyrir notandann skiptir hugbúnaðurinn mestu. Þróun hugbúnaðar hefur verið ör síðustu ár, sífellt koma fram nýjar útgáfur af eldri búnaði og einnig koma fram nýjungar. Almennt má þó segja að hugbúnaður hefur þróast í það að bæta nýjungum við eldri hugbúnað fremur en að nýr búnaður sem gjörbreytir öllu komi fram á markaðinn. Fyrir almennanotendur eru ritvinnsla, töflureiknir,teikni- eða skyggnuforrit g hugsanlega gagnagmnnsfon-it allt sem þarftil að sinnanánastöllum tölvuþöifum.Ekki hafa orðið veru- legarbreytingará þessum tegund- um hugbúnar nú síðustu mánuði enda vandséð að einhverjar meiriháttar breytingar sé hægt að gera á þessum tólum. Hins vegar hafa þessar tegundir hug- búnaðar þróast all hratt á síðustu árum og viðbætur verið gagnlegar í flestum til vikum. Oft er hægt að kaupa þessi forrit í einum pakka og spara nokkurt fé. Nýjungamar eru senni- lega flestar í leikjaforritum en þar virðist vera sífelld upp- spretta nýjunga enda er markaðurinn fyrir leiki stór. Nánar er vikið að Intemetinu og þróuninni þar í sér kafla. Hópvinnukerfi opna nýjar víddir Fyrir vinnustaði er sennilega mesta breytingin notkun sk. hópvinnukerfa. Þessi kerfi auðvelda samvinnu einstaklinga og hópa með tækjum og tólum. Nefna má tölvupóst, sameiginlegar viðskiptavinaskrár, dagbækur, skjalastýringarkerfi og gæðastjórnunarkerfi. Með þessum kerfum er hægt að halda með þægilegum hætti utan um vinnu í hópi, hvort sem er um einstök verkefni eða daglegt amstur er að ræða. Hægt er að stýra aðgangi að skjölum, senda skjöl í töl vupósti til útvalinna, vinna saman að breyt- ingum og dreifaefni. Einnig er hægt að stillaupp fundaplani þar sem tekið er tillit til dagbókar allra fundarmanna. Hægt 26

x

Vísbending

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.