Vísbending


Vísbending - 20.12.1996, Blaðsíða 6

Vísbending - 20.12.1996, Blaðsíða 6
ÍSBENDING hugmynd að viðskiptaráðherra skrifaði bankanum bréf og lýsti því yfir að þegar helmingur gjaldeyrislánsins væri uppurinn, þá skyldi málið tekið til nýrrar athugunar og viðeigandi ráðstafanir gerðar, ef þörf krefðist. Þetta var komið svo langt að Gylfi Þ. Gíslason var búinn að sættast á það fyrir sitt leyti og ég búinn að skrifa uppkast að bréfinu, þegar þeir Jón og Vilhjálmur féllu frá þessu skilyrði. Reyndar þurfti aldrei að nýta nema brot af þessu láni, en þetta sýnir hversu rótgróin vantrúin var á því að íslenskt hagkerfi lyti sömu lögmálum og hagkerfi annarra landa. verki. Verkföll komu náttúrlega ekki til greina. Það gerðist ekki fyrr en eftir stríð, og þótti sögulegur atburður. Hér á landi var ástandið allt öðruvísi. Hér höfðu menn enga tilfinningu fyrir því að nauðsyn væri á ströngu taum- haldi. Þvert á móti höfðu menn á tilfinningunni, að því hærra sem launin væru spennt upp, því meiri verðbólga sem væri í gangi, því meira yrðu Bretar og Bandaríkjamenn að borga. Heldurðu að ráðamenn hafi beinlínis hugsað þaimig? Tiltrú á aðgerðir Sjálfur var ég sannfærður um að eðlilegt jafnvægi mundi skapast í viðskiptum landsins. Raunin varð líka sú. Þegar menn sannfærðust um að innflutningur væri frjáls - og yrði það áfram - minnkaði eftirspurnin eftir innfluttum vörum. Það var ekki lengur eftir neinu sérstöku að sækjast. Og fólk fór að spara. En margir efuðust lengi vel, ekki síst embættismenn sem séð höfðu fyrri tilraunir bregðast, þegar úthald og varasjóð skorti. Um vorið 1960 mætti ég Gunnlaugi Briem, ráðuneytisstjóra í sjávarútvegsráðu- neytinu, fyrir utan Arnarhvol. Ég man enn gleðisvipinn á andliti hans þegar við hittumst og hann segir við mig: „Nú er þetta að ganga! Ég varaðsjátölurnarumbankainnlánin. Nú er fólk farið að spara. Það er farið að leggja inn - þá er þetta farið að ganga!“ En þessi vantrú var ekki bara innanlands. Erlendis litu menn líka á Islendinga sem eitthvert sérfyrirbæri. Mars- hallhjálpin hratt af stað þróun meðal Evrópuþjóða, þar sem þær áttu að afnema höft, koma gengismálum sínum í lag og opna viðskipti sín á milli. Það var bara ekki gengið eftir því gagnvart okkur. Við vorum að skáka í því skjóli, að við værum svo litlir og hagkerfið svo einhæft. Þess vegna er mér líka minnisstætt, þegar Kanadamaður að nafni Cahn, aðstoðarframkvæmdastjóri OECD, segir við mig þetta sama voríjúní, þegarhann kom hingað: „Oh my God, I believe it is working!“, og hélt áfram að útskýra fyrir mér að það kæmi honum alltaf á óvart þegar áætlaðar kerfisbreytingar gengju upp. Þessi vantrú útlendinga á efiiahagsstjórn okkar var ekki ný afnálinni. Þér þótti ekki skemmtilegt að útskýra fyrir Svíum á námsárunum, hvernig þessum málum vœri háttað hjá okkur. Jú það er rétt. Ég hef stundum sagt frá því, þegar einn kennara minna, Ingvar Svennilsson, fór að spyrja mig um efnahagsmál áíslandi. Mérofbauð sú efnahagslegaóstjórn sem ríkti hér heima á stríðsárunum, hreinlega fyrirvarð mig fyrir þetta og átti erfitt með að tala um það. Ég man enn hvað mér leið illa að þurfa að segja honum frá þessari stjórnlausu verðbólgu og vitleysu hér heima, sem þekktist ekki í Svíþjóð. Svíþjóð var náttúrlega ekki í stríði, en var umkringd og varð að taka mið af stríðsástandinu. En þar var styrk þjóð- stjóm undirforystu sósíaldemókrataog verkalýðshreyfingin bar fullt traust til hennar og studdi dyggilega við bakið á henni. Það var skömmtun og það var verðlagseftirlit, en einnig var beitt peningapólitískum og fjármálapólitískum ráðstöfunum.Salaríkisskuldabréfagegndimikilvæguhlut- Nei, en menn sáu að þetta var svona. Og sú viðleitni, sem stjórnvöld höfðu uppi til að hafa hemil á þessu, var brotin niður í skæruhernaðinum 1942, þegar Sósíalistaflokkurinn tvöfaldaði fylgi sitt á hálfu ári eða svo og tók völd og forystu í verkalýðshreyfingunni og hélt þeim ítökum um áratugi. Ég man eftir að heyra Ólaf Thors tala um það feikna afl, sem hefði verið sleppt lausu í þessum skæru- hernaði og mér er nær að halda að þessi reynsla hafi fylgt honum alla tíð og hann viljað forðast að lenda aftur í slíkum átökum. Ég er viss um að það skipti máli 1963, þegar grunnur var lagður að sáttum viðreisnarstjórnarinnar við verkalýðs- hreyfinguna. Og eftir styrjöldina Ipieig allt í sama farveg? Já, gengið var náttúrulega snarvitlaust skráð og engar hömlur gátu komið í stað rétts gengis til að hindra útstreymi gjaldeyris. Þegar frá er talin tilraunin 1950, sem byggð var á ti llögum Benjamíns Eirr'kssonar og Ólafs Björnssonar, þá var allt reyrt í viðjar opinbers stjórnkerlis. Útflutningur fór fram á grundvelli ríkisábyrgðar, sem var byrjun þess upp- bótakerfis sem einkenndi áratuginn milli 1950 og '60. Ég man að þegar ég hvarf frá Alþjóðabankanum eftir sjö ára starf þar ti I að gerast efnahagsráðunautur ríkisstjórnar Her- manns Jónassonar 1957 fór ég í kveðjuviðtal til Eugene Blacks forseta bankans, sem var virtur maður og merkur. Hann talaði um hvað það væri hörmulegt, þegar vel menntuð þjóð, sem margt hefði til síns ágætis, gæti ekki stýrt efna- hagsmálum sínum með betri árangri. Óg það var um þetta leyti, sem tímaritið Economist birti grein um ísland undir fyrirsögninni „Tight little island“. Þeir lögðu út af efni þekktrar kvikmyndar, sem hlotið hafði mikla aðsókn víða um heim. Hún fjallaði um skip hlaðið vínföngum, sem strandar við eina af skosku eyjunum. Eyjarskeggjar bjarga farminum í land og síðan fer öll eyjan á eitt dásamlegt fyllirí. Greinarhöfundi fannst framferði íslendinga svipað, þjóðin öll vildi vera á endalausu fylliríi, eyða og spenna. Islendinga skorti allan sjálfsaga og sjálfstjórn. Marshallað- stoðinni hefðu þeir eytt í vitleysu í stað þess að nýta hana til að taka sjálfum sér tak, eins og aðrar Evrópuþjóðir. Minnimáttarkennd ✓ Eg fann það líka á Ólafi Thors á fyrstu mánuðum Viðreisnaraðhann var tregurtil aðhittastarfsbræður sína í norrænu samstarfi. Honum fannst þeir líta niður á íslenska forsætisráðherrann sem fulltrúa þjóðar, sem kynni ekki fótum sínum forráð. Svo þegar Viðreisnin var komin vel af stað brá Ólafur vana sínum og sótti fund forsætisráð- Ólafur Thors 6

x

Vísbending

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.