Vísbending


Vísbending - 20.12.1996, Síða 8

Vísbending - 20.12.1996, Síða 8
IISBENDING W tt atvinnulífið sveigjanleika til að laga sig fljótt að nýjum aðstæðum. Andi frjálsræðis í viðskiptum og ekki síst til framkvæmda opnaði nýjar leiðir. Framleiðslan beindist sjálfkrafa í þær áttir sem hagkvæmastar voru. Flutningur mannafla og tækja frá bolfiskveiðum og -vinnslu til síld- veiða og síldarvinnslu gekk snurðulaust án opinberra afskipta. Lokaprófraun Lokaprófraunin á framtíðargildi þeirra umbóta, sem Viðreisnin fól í sér, kom svo í kreppunni er hófst 1967. Það árminnkaðisíldaraflinn um 40% og áriðeftir fór hann niður í einn fimmta þess sem verið hafði I966. Og síðustu mánuði ársins 1966 fór útflutningsverðið að falla. Verðmæti vöruútflutnings lækkaði um 45% á næstu tveimur árum. Framleiðslumagnið lækkaði um 35%. Þetta varmestaefnahagsáfall, sem Islendingar höfðu orðið fyrir síðan í heimskreppunni. Skreiðarmarkaðurlokaðist vegna styrjaldar í Nígeríu. Freðfískverðið fél l og sömuleiðis verðið á síldarafurðum. Við- reisnarkerfið stóðst einnig þennan prófstein. Á tveimur árum tókst að vinna sig út úr þessumerfiðleikum.Áárinu I970jókstþjóð- arframleiðslan um 6% og þjóðartekjumar um 10% og heildargreiðslujöfnuður var aftur hagstæður. Jú, en átti hér ekki hlut að máli að góð samvinna hafði tekistmeð ríkisstjóminni og verkalýðshreyfingunni kjörtímabilið á und- an og að það varð eins konar þjóðarsátt um að vinna sig út úr þessum erfiðleikum ? Vissulegahafði samstarfríkisstjórnarinn- ar, ASÍ og Vinnuveitendasambandsins sitt að segja í þessum efnum. Þetta samstarf, sem átti rætur sínar að rekja til áranna 1963 og '64, tók nú á sig áþreifanlega mynd í hóflegum kjarasamningum og beinum aðgerðum til að rétta við atvinnulífið víðs vegar um landið. En það voru almennar efna- hagsaðgerðir, sem úrslitum réðu. Það varð að grípa til tveggja gengisfellinga. Sú fyrri varð í kjölfar gengislækkunar pundsins í nóvember 1967 og var þá dollarinn hækk- aður úr 43 í 57 krónur. Hinn 11. nóvember 1968 var gengið svo enn lækkað í 88 krónur á dollar. Upp úr þessu snerust allar hagtölur til betri vegar, greiðslujöfnuður, viðskipta- jöfnuður og gjaldeyrisstaða bötnuðu. Útflutningurinn jókst um 30% strax á árinu anlegt. Snögg umskipti höfðu líka orðið á vinnumarkaði. Eftir uppgrip undanfarinna ára skall nú á atvinnuleysi, sem ekki þætti mikið nú, 2-3%. En atvinnuleysi hafði verið nálega óþekkt í aldarljórðung, frá upphafi síðari heimstyrj- aldar. Upp úr þessum aðstæðum spratt samvinna ríkisvalds, verkalýðs og atvinnurekenda. Komið var á fót atvinnumálanefndum um land allt undir forsjá níu manna Atvinnumála- nefndar ríkisins, sem skipuð var þremur mönnum frá hverjum aðila. Forsætisráð- herra, Bjarni Benediktsson, varformað- ur en aðrir ráðherrar í henni voru Gylfi Þ. Gíslason sem viðskiptaráðherra og Jó- hann Hafstein, iðnaðarráðherra. Undir- nefndir störfuðu í kjördæmunum og voru virkar í að velta upp ýmsum möguleik- um til atvinnuaukningar. Þessar nefndir fengunokkurtfétilumráða,300milljónir króna, sem lánað var til að örva atvinnu- lífið, þar sem með þurfti, staðbundið. Auk þess höfðu þær óbeinan aðgang að bönkum og lánasjóðum. Eg ferðaðist um allt landið og kynntist verkalýðs- leiðtogum og atvinnurekendum, starf- semi í fyrirtækjum og atvinnumynstri á þéttbýlisstöðum um allt land. Með þess- um aðgerðum tókst til dæmis að endur- skipuleggjafrystihúsináAusturlandi,sem voru öll í niðurníðslu út af síldinni. Það þurfti að lagfæra báta til þess að þeir gætu farið að veiða þorsk og það þurfti að færa til bátamilli landshluta. Þetta varekki ýkja kostnaðarsamt, en skapaði traust og vel vild við aðstæðurþar sem sundurlyndi og skilningsskortur hefðu gert illl verra. Gengisbreytingamar voru hins vegaraðal- atriðið og þær almennu peningapólitísku aðgerðir, sem gerðu bönkunum kleift að lána út meira fé. Bjarni Benediktsson Gylfi Þ. Gíslason Jóhann Hafstein 1969 og þjóðarframleiðsla og þjóðartekjur tóku við sér. Inngrip réttlætanlegt En þessar tölur segja ekki nema hluta sögunnar. Það mikla fjármagn sem bundið hafði verið í síldveiðun- um varð að mestu óarðbært á skömmum tíma og breytingin varð mörgum byggðarlögum þungbær, einkum á Aust- fjörðum. Beint inngrip í þá þróun var því fyllilega réttlæt- Ólga á vinnu- markaði 77li urðu ekki þáttaskilin ísamskipt- I j um verkalýðshreyfingar og ríkis- stjómar miklu fyrr, eða á árinu 1964? Jú en ekki með jafnformlegum hætti og efnt var til með stofnun atvinnumála- nefndanna. Á fyrsta kjörtímabili viðreisnarstjórn- arinnar má segja að ríkt hafi ófriðará- stand á vinnumarkaði. Verkalýðshreyf- ingin undi mjög illa því banni sem lagt var við sjálfkrafa hækkunum kaups samkvæmt vísitölu, en það töldum við að fenginni reynslunni frá 1950 að væri algert lykilatriði, einsogég sagði áðan.Pólitískuflokkarnirístjórnarandstöðu og verkalýðshreyfingin voru á þessu kjörtímabili samstiga. Verkalýðshreyfingin knúði fram kauphækkanir strax á árinu 1961, sem svarað var með gengislækkun. Á miðju ári 1963 úrskurðaði Kjaradómurríkisstarfsmönnum verulegar leið- réttingar og varð sú hækkun mest í efri launaflokkunum. Þetta olli mikilli gremju meðal verkafólks. I kjölfar þessa 8

x

Vísbending

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.