Vísbending


Vísbending - 20.12.1996, Qupperneq 22

Vísbending - 20.12.1996, Qupperneq 22
llSBENPING siglt nema aðra leiðina hvert sumar, til íslands eða frá, þannig að nýting skips og áhafnar var afar takmörkuð. Fornmenn hafa að vísu ekki hugsað um kostnaðarliði á sama hátt og við, t.d. ekki hugsað að skipseigandi þyrfti að „gjaldfæra“ ígildi tryggingariðgjalds í samræmi við hætt- una á sjótjóni. En hvernig sem fornmenn litu á þetta sjálfir, þá hefur þó verslunarálagning á hina smáu farma á endanum þurft að standa undir tilkostnaði, áhættu og arðkröfu í þessum rekstri svo að hann lognaðist ekki út af. / Ohagkvæm verkaskipting Hár flutnings- og viðskiptakostnaður hefur í rauninni komið í veg fyrir alla hagkvæma verkaskiptingu milli íslands og umheimsins. Verslun var lúxus. Kirkjan þurfti að flytja inn dýrar og sjaldséðarvörurtilaðfylgja tilskipuðuformi helgihalds: vax í kerti, hveiti í oblátur, vín til altarisþjónustu, reykelsi, auk þess listmuni og jafnvel glerglugga til að prýða guðshúsin. Höfðingj- ar, leikir sem lærðir, þurftu innfluttar vörur til að berast á í klæðaburði og veislu- höldum og híbýlaprýði. Bændur, sem komusl í nokkrar álnir, hafa víst líka gert það að stöðutákni að einhverjar kaupstaðarvörur kæmu á heimilið, þó varla nema í táknrænu tnagni. Sigling var mismikil, en trúlega hefur heildarmagn innflutnings sveiflast í kringum 5 kg á mann á ári eða eitthvað í námunda við það, það er að segja á seinni hluta þjóðveldisaldar; á víkingaöld má vel vera að þessi tala hafi verið enn lægri. Útflutningur hefur verið svipaður að magni: sem sagt óverulegur hluti af framleiðslu landsins. Vaðmál fremur en ull Ull hefurkannski verið íslendingum útbærari en flest annað, því að á meðalbúi hefur hún að jafnaði fallið til umfram heimilisþarfir. Þó var sauðfé miklu færra á þjóð- veldisöld en seinna varð, nautgripir að sama skapi íleiri. Hvort tveggja gerði þá að mörgu leyti sama gagn: bæði ær og kýr voru á sumrin mjólkaðar í seli, kýrnar varla fóðraðar tilmikillanytjaáveturna,en uxarog sauðirhafðirtilslátrun- ar. Sauðféð hafði svo ullina fram yfir, og var vandalaust að fjölga því á kostnað nautgripa ef menn kærðu sig um meiri ull. Mikill fjöldi nautgripa miðað við sauðfé bendir því til að íslendingar hafi ekki séð not fyrir meiri ull en þeir höfðu. Þeirmáttu vel missafáein ullarreyfi ámanntil útflutnings, og þó meira hefði verið. Þar með er hins vegar ekki skýrt hvers vegna ullin var að langmestu leyti flutt út sem vað- mál (óunninni ull réttbregðurfyriríheimildum um útflutn- ing). Eftir hefðbundnum verðhlutföllum tvöfaldaðist verð- mæti ullarinnar við vaðmálsgerðina, en þau verðhlutföll spegla ekki framboð og eftirspurn, og í raun hefur tilkostn- aður við vaðmálið meira legið í úrvinnslunni en hráefninu. Islendingar voru að flytja út vinnu iðn verkafólks fremur en afrakstur af landsins gæðum. Flóknara samspil / Aður en lengra er haldið í skýringaleitinni, er sky It að játa að vöruskipti íslands við umheiminn voru ekki alveg eins einföld og lýst var hér að framan. Útflutningur var ekki eintómt vaðmál þótt það virðist yfirgnæfa. Til dæmis var eitthvað flutt af skinnavöru, og svo er að sjá sem bæði tófuskinn og kattarskinn hafi verið verslunarvara í allháu verði, væntanlega eftirsótt vegna útflutnings; ekki er þó vitað hvort kattahald var beinlínis aukabúgrein skinn- anna vegna. Og á hinn bóginn var innflutningurinn ekki allur munaðarvara í háu verði, því að timbur virðist þar skipta talsverðu máli, bæði smíðaviður til almennra nota og tilhöggvið timbur í stórbyggingar, og það gat ekki verið í háu verði miðað við þyngd. Er það satt að segja nokkur ráðgáta, miðað við hina afar kostnaðarsömu samgöngu- hætti, hvernig innfluttur smíðaviður gat keppt við reka- við, jafnvel þótt nýtingu hans fylgdi mikil fyrirhöfn, bæði við vinnslu og flutning. Ráðgáta Þessi ráðgáta um timburinnflutninginn geyrnir víst lykilinn að hinni ráðgátunni, af hverju ullariðnaður var útflutningsframleiðsla. Hvort tveggja skýrist af því vandamáli kaupmanna að þurfa að flytja álíka verðmætan farm frá íslandi og til þess. Skip kemur til Islands að sumri. A því eru tugir manna, bæði áhöfnogfarþegar.Fyrirskipinuráðasvonefndirstýri- menn, þ.e. kaupmenn. Skipverjareru allir kaupmenn í smá- um stfl, því að þeir eiga, hver um sig eða nokkrir í félagi, hluta af farmi skipsins, og vinnaþeir á skipinu fyrir flutningi á þessum varningi sínum. Loks eru farþegarnir, íslenskir ferðalangar á heimleið og með einhvern farangur. Farmenn selja af varningi sínum við skip, taka sér veturvist nteð bændum, selja smám saman það sem eftir er af varningi, aukþesssemþeirgreiða(eða gefajfyrir vistina. Landsmenn kaupa vörurnar mest í skuld og lofa greiðslu í vaðmálum um vorið. Þeir hafa þá veturinn til stefnu að láta vefa upp í skuldina. Af hverju sömdu farmenn um vaðmálsgreiðslur, fremur en t.d. greiðslu í ull, smjöri eða osti? Ekki endilega vegna þess að vaðmálið hafi borið hærri álagningu (þ.e.a.s. verð- hlutfall þess við hinar vörurnar verið lægra á íslandi en í Noregi) heldur vegna þess að þá hefði skipið ekki rúmað allan varning þeirra á heimleið. Það jók á vandann að íslensku farþegarnir, sem að jafnaði voru a.m.k. jafnmargir utan sem út (dauðsföll voru reyndar alltíð f utanlandsferð- um), höfðu miklu meiri farangur með sér á leið frá landinu, þ.e. varning til að nota sem gjaldeyri á ferðalaginu, varla 22

x

Vísbending

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.