Vísbending - 20.12.1996, Qupperneq 25
ÍSBENDING
Or þróun í tölvuheiminum
Tómas Örn Kristinsson
• •
Or þróun í tölvuheiminum kemur víst fæstum á óvart
núorðið. Vélbúnaðarþróunin er hröð. Tölvurnar
verða minni um sig, aflmeiri og verðið lækkar stöðugt.
Hugbúnaðurinn verður sífellt fullkomnari, verðið þar hefur
einnig lækkað og sífellt stinga upp kollinum nýjungar sem
létta okkur lífíð. Með sk. hópvinnukerfum gjörbreytast allar
aðferðir við vinnu innan fyrirtækja auk þess sem hægt er að
draga úr pappírsfargani. Internetið nær sífellt meiri útbreiðslu,
þótt notkun þess til beinna viðskipta sé enn á frumstigum.
Nýjungarnar eru flestar í Internetheiminum, bæði hefur komið
fram afsprengi sem kallað er Intranetið og er það nokkurs
konar einka-Internet fyrirtækja.
Vélarnar vaxa
Tölvurnarsem komufram í gærverðaúreltarámorgun, gæti verið viðeigandi
lýsing á þróuninni í tölvuheiminum síðustu árin. Þróunin er svo ör að
almennt geta menn ekki átt von á því að fullnægjandi tölvubúnaður sem keyptur
var fyrir Iveimur til þremur árum uppfylli þær kröfur sem gerðar eru til lág-
marksbúnaðar nú.
Sýnilegust er þróunin í einkatölvugeiranum þó að orðið einkatölva sé að
sumu leyti misvísandi því einkatölva hjá einum aðila er sambærileg viðskipta-
tölvuhjáöðrum.MeðtilkomuWindows95 varðgjörbreytingálágmarkskröfum
til tölvubúnaðar. Þetta varðar sérstaklega þörfina á innra minni en þörfin á
stórum diskum hefur síst minnkað. Það sem gerir þessa þróun þó bærilegri er
að verðið á viðkomandi búnaði hefur lækkað hröðum skrefum.
Enn heldur sú þróun áfram að sífellt meiri búnaður fæst fyrir sama fé og fyrir
einhverjum misserum. Hægt er að fá þokkalega einkatölvu á c.a. 130.000 kr. í
dag og er það í raun ekki ósvipað og fyrir þremur árum. Munurinn liggur í
margfalt öÖugri örgjörva, meira innra minni, stærri hörðum disk, stærri skjá og
aukabúnaði, svo sem geisladrifi, mótaldi og margmiðlunarbúnaði. Að auki er
hægt að fá mjög frambærilega prentara, jafnvel litaprentara, fyrir tiltölulega
lítið fé.
Fistölvur hafa á síðustu mánuðum unnið sér aukinn sess í tölvuheiminum.
Með aukinni eftirspurn hefur verðið sigið niður á við og ekki er að sökum að
spyrja, nýir aðilar koma inn á markaðinn, bæði framleiðendur og viðskiptavinir.
Stærsti markaðurinn hefur verið starfsemi sem tengist sölumennsku. Búast má
við að verðið eigi eftir að lækka enn frekar en talið er að 13 milljónir fistölva
muni seljastíBandaríkjunumáþessuári.Ennerþó nokkurverðmunuráfistölv-
um og sambærilegum borðtölvum en
sá munur á eftir að minnka.
Jaðartækin eru
mikilvæg
Þróunin í tölvuprenturum hefur
einnig veriðör. Ódýrirlitaprent-
arar fyrir heimanotkun eða einfaldari
notkun í viðskiptalífinu eru fáanlegir í
mörgum útgáfum. Verðiðábetri prent-
urum hefur einnig lækkað verulega og
er líklegt að markaðurinn með þá eigi
eftir að vaxa hratt.
Skannarhafa tekið miklum framför-
um. Hægt er að fá skanna með upplausn
sem nothæf er í innanhússvinnu á
tiltölulega lágu verði. Skannar með
hærri upplausn eru fáanlegir en þeir
kosta auðvitað sitt.
Algengasti hraði mótaldasem í boði
eru í dag er 28.800 baud en auð vitað er
hægt að fá hraðvirkari mótöld, að ekki
sé talað um samnetssamband.
Þróunin í tölvuskjám er einnig ör.
17 tommu skjáir eru farnir að ryðja sér
til rúms og þess er sjálfsagt ekki langt
að bíða að 20 tommu skár verði á h vers
manns borði. Þótt vonandi verði komin
fram betri tækni sem gerir þá fyrirferð-
arminni.
Nýjar tegundir lyklaborða hafa litið
dagsins ljós og er lyklaborð sem Micro-
soft býður athyglisvert. Lyklaborðið
er tvískipt og snúa hlutarnir þannig að
minnihættaertalináatvinnusjúkdóm-
um sem vélritun geta fylgt.
Geisladrif snúast nú á áttföldum
25