Frjáls verslun - 01.05.1944, Blaðsíða 21
FRÁ REYKJAYÍK
Sumarkvöldum í Reykjavík er viðbrugðið fyrir fegurð. Hið ástsæla skáld, Þor-
steinn Erlingsson, kvað: „Ef þú hefur sumarkvöld verið í Vík, þá veit jeg, hvað hugur
þinn fann: Þjer sýndist hún fögur, þjer sýndist hún rík, er sólin við Jökulinn rann.“
Hinn orðhagi og Ijóðræni Tómas Guðmundsson segir: „. en er nokkuð yndis-
legra, leit auga þitt nokkuð fegra, en vorkvöld í Vesturbænum?“ Vera má að kveðið
hafi verið um sólaruppkomuna í Reykjavík, en þeir munu þó fleiri, sem þekkja sólar-
lagið í Reykjavík en sólaruppkomuna. Það er áreiðanlega ómaksins vert að vera á
ferli við Tjörnina í Reykjavík um sólarupprás í kyrru veðri að sumarlagi. Myndin hér
að ofan er frá Tjörninni, en hún gefur litla hugmynd um þann frið og þá fegurð, sem
þessi staður í hjarta höfuðstaðarins býr yfir, þegar hann ljómar í skyni hinnar mjúku
birtu rísandi sólar.
FRJÁLS VERZLUN
21