Frjáls verslun - 01.05.1944, Qupperneq 48
feru á ferð. Enda eru áhrifin á vesalinga þá, sem
heimskringluna byggja, eftir því. Þegar annaðhvort
er of heitt eða of kalt, hafa líkamir manna og dýra
of mikið að annast við að halda hitanum hæfileg-
um í líkamanum, til þess að nokuð að ráði verði af-
gangs til annara starfa. Tilraunir með rottur leiddu
í ljós, að þær, sem látnar voru vera í köldu, voru
allt að því sex sinnum fljótari að átta sig á tilver-
unni, heldur en þær, sem voru í hita. Ennfremur
urðu þær fyrrnefndu að jafnaði stærri, hraustari,
námfúsari og frjósamari en þær síðarnefndu.
Athuganir, sem gerðar voru í Bandaríkjum Norð-
ur-Ameríku, sýndu að hlutfallslega langmestur hluti
snillinga og afburðamanna og kvenna kom frá þeim
hlutum landsins, sem höfðu kalda og stormasama
veðráttu. En sömu landsvæði höfðu einnig háa
hundraðstölu af vitfirringum og andlegum vanheil-
indum yfirleitt. Þar sem veðrátta var hlýrri og jafn-
ari, var minna um afreksmenn, og líka minna um
andlega aumingja. Þá er fólki, sem býr við kalt og
breytilegt veðurfar, hættara við sjúkdómum, t. d.
hjartasjúkdómum, en hinum, sem við hlýrra veður-
far búa.
Enginn sleppur við veðrið, frekar en við skatt-
heimtumennina eða dauðann. Það hefir áhrií á alla
skapaða hluti. Það getur valdið nýju heimsmeti hjá
hlaupara, blæðingu hjá berklasjúklingi, fitu á ungri
stúlku, magaveiki hjá einum og ástarþrá hjá öðrum.
Börn verða misjafnlega þung eftir því, hvort þau
eru getin að vor- eða haustlagi. Sagt er að mönnum
gangi betur að fást við stærðfræði þegar loftþrýst-
ingur er hár. Á þetta að stafa af því, að misjafn
loftþrýstingur veldur misjafnlega mikilli blóðrás til
heilans. En hvað sem þessu líður, má allsstaðar koma
auga á bein eða óbein áhrif veðurs og veðráttu á
líf manna.
Allir tala um veðrið og venjulega er kvartað yfir
því. En þess má þó minnast, að það veður, sem
einn kvartar undan, er ef til vill einmitt það, sem
annar hefir beðið um og óskað eftir.
(Lausl. þýtt.)
Rússnesk mannanöfn geta verið óþjál og ein-
kennileg í framburði. Við liðskönnun í rússneskri
herdeild varð liðsforingja það á að hnerra hressi-
lega. Fjórir hermenn gengu samstundis fram og
sögðu: „Hér.“
★
Ungur prestur, sem var að húsvitja í fyrsta sinn,
spurði aldraða konu hvernig trúarlífi hennar væri
háttað.
— O, ég hefi snert af þessu öðru hvoru, svaraði
sú gamla raunamædd.
★
Iðjuleysinginn getur aldrei tekið sér hvíld.
„FRJÁLS VERZLUN"
ÚtgefancLi: Verzlunarmannafélag Reykjavíkur.
Formaður: Hjörtur Hansson.
Kitstjóri: Bárður Jakobsson.
Ritnefnd: Adolf Björnsson, Baldur Pálmason,
Einar Ásmundsson, Konráð Gíslason, Lúðvík
Hjálmtýsson.
Skrifstofa: Vonarstræti 4, 2. hæð, Reykjavík.
Sími 5293.
ísafoldarprentsmiðja h.f.
Kona nokkur sagði eitt sinn við brezka blaða-
kónginn Northcliffe lávarð, að einn morgun, þegar
hið þekkta skáld Thackeray vaknaði, hafi hann
komizt að raun um, að hann var orðinn frægur.
— Þegar birti af þessum morgni, svaraði North-
cliffe, hafði Thackeray skrifað 8 stundir á degi
hverjum í 15 ár. Sá maður, frú mín góð, sem kemst
að því, þegar hann vaknar, að hann er orðinn fræg-
ur, hefir ekki verið sofandi."
★
Áhyggjur og andstreymi er mjög oft sprottið af
einskærri ímyndun. Maður nokkur var um nætur-
sakir á gistihúsi. Veður var heitt og mollulegt og
reyndi maðurinn að opna glugga, en tókst það ekki.
í bræði sinni þreif hann skó og braut fjórar rúður.
Síðan gekk hann til rekkju og svaf vært til morg-
uns. Þegar maðurinn vaknaði, sá hann, að hann
hafði brotið glerhurð fyrir gömlum skáp, sem stóð
í herberginu!
★
Það getur kostað mikið erfiði að fá fasta stöðu
hjá því opinbera, en það er hægt að hvílast vel og
lengi, ef það tekst.
48
FRJÁLS VERZLUN