Frjáls verslun - 01.06.1963, Síða 12
Ný hótel utan Reykjavíkur —
r--——--------------------------------
FRJÁLS VERZLUN hefrn leitað til nokk-
urra hótel- og veitingamanna í Reykja-
vík og beðið þá um að lýsa viðhorfum
sínum til ástandsins í hótelmálum íslend-
inga nú. — Fara álit þeirra hér á eftir
ísland - fyrir þé, sem leila
hvíldar og heilsubóta
t dag er Hótel saga komin í fullan gang. Öll
gistiherbergi hafa verið tekin í notkun og aðsókn
hefur verið svo mikil, að við höfum orðið að neita
miklu, sérstaklega í júlímánuði. Ágústmánuður lof-
ar einnig mjög góðu. Þær ráðstefnur og fundir,
sem hér eru haldnar nú hefði ekki verið unnt að
halda, ef Saga hefði ekki verið komin í starfrækslu.
Nýtingin var einnig mun betri í vetur en við bjugg-
umst við.
Vegna góðrar samvinnu við hin hótelin í Reykja-
vík vitum við, að Saga hefur ekki tekið frá þeim
gesti, heldur þvert á móti tekið við þeim aukna
ferðamannastraumi sem orðið hefur til íslands og
ekki hefði verið hægt að taka á móti, ef Sögu hefði
ekki notið við. Það var því tvímælalaust tímabært
er hafizt var handa um byggingu Hótel Sögu.
Um þörfina á frekari hótelbyggingum hér í
Reykjavík vil ég segja þetta: Maður getur látið
sér detta í hug að nú sé þörf á minni hótelum, fyrir
hinn almenna ferðamann, sem vill greiða sem
minnst fyrir gistinguna, en þó njóta þeirra þæg-
inda, sem hann er vanur, herbergi með baði og
salerni og góðu rúmi, þótt ekki sé að öðru Ieyti
mikið í hótelið lagt.
En það er ekki einhlítt að byggja hótel í Reykja-
vík, til þess að fá ferðamenn hingað til íslands og
ferðast um landið. Úti um land þarf einnig að sjá
þeim fyrir sómasamlegu gistirými. En sumarið okk-
ar er stutt og þar af leiðandi erfitt að halda hóteli
gangandi allt árið úti um land. Ég tel því tvímæla-
laust stefnt í rétta átt þegar leitast er við að sam-
eina í einu húsi skóla á veturna og gististað að
sumri til. Litlir fjallaskálar við hveri og vötn og
skíðalönd, margir en smáir, er einnig það sem
koma þarf.
Framtíð íslands sem ferðamannalands liggur ekki
í því að fá menn hingað til Reykjavíkur til þess
að skemmta sér, heldur hina sem virkilega meina
það að þeir þurfi á hvíld að halda. Þeir eiga að
koma hingað til þess að njóta loftslagsins, hvera-
hita og leirbaða. Island er framtíðarlandið fyrir
þá sem vilja leita sér heilsubótar. Það kostar auð-
vitað mikla peninga að skapa hér góðar aðstæður
til slíks. En maður sem á annað borð er að leita
sér lækninga hann ferðast um allan heiminn ef
með þarf.
Þjónusta við ferðamenn er óneitanlega á byrj-
unarstigi á íslandi, en hér er samt margt vel gert.
Við Islendingar erum gestrisin þjóð og viljum, að
þeim líði vel sem hér ber að garði. Þeir sem nú
vinna á Hótel Sögu höfðu aldrei unnið á hóteli
áður en okkur hefur tekizt að taka svo á móti
gestum, að þeir hafa farið ánægðir frá okkur, um
það vitna hin fjölmörgu bréf, sem við höfum feng-
ið frá gestum okkar.
12
FRJÁLS VERZLTJN