Frjáls verslun - 01.06.1963, Síða 16
HÓTEL
í
REYKJAVÍ K
AÐ OFAN: Hótel Borg var lullbyggt árið 1930. Það var byggt af svo
miklum stórhug, að enn í dag er það eitt fullkomnasta hótel á Iand-
inu. Að undanförnu hafa miklar umbætur verið gerðar á gistiherbergj-
um og veitingasölum Hótel Borgar. A Hótel Borg eru nú 46 herbergi
með 75 rúmum. Hótelstjári er Pétur Daníelsson.
AÐ NEÐAN: á undanförnum árum hafa risið upp í höfuðborginni nokkr-
ar ferðaskrifstoíur í einkaeign. sem skipulagt hafa fjölmennar hópferð-
ir svo og einstaklingsferðir til annarra landa. Hin elzta þeirra er Ferða-
skrifstofa Zoega en hinar eru, Saga, Sunna, Utsýn og Lönd & Leiðir.
Enn eru miklar hömlur lagðar á starfsemi þessara ferðaskrifstofa vegna
einokunaraðstöðu Ferðaskrifstofu ríkisins. Myndin hér að neðan er af
Ferðaskrifstofunni Lönd & Leiðir.
Hótel Saga er nú fullkomnasta og glæsilegasta hótel á íslandi. Bygg-
ing þess leysti úr brýnni þörf fyrir aukið gistirými í höfuðborginni.
A Hótel Sögu eru 90 herbergi með 150 rúmum. Ennfremur eru í hótel-
inu tveir glæsilegir veitingasalir og er ætlunin að taka þar upp ýmis
konar þjónustu sem ekki hefur tíðkazt hér áður á hótelum, svo sem
bankastarfsemi, hárgreiðslustofu o| fl. Hótel Saga er í eigu bænda-
samtakanna, en hótelstjóri er Þorvaldur Guðmundsson.
I
AÐ OFAN: Setustofan á Hótel City. — Hótel City hefur aðeins verið
starfrækt í nokkur ár, en er þegar orðið mjög vinsælt og fjölsótt hótel.
A hótelinu eru 28 herbergi með 48 rúmum. Morgunverður er fram-
reiddur en annar matur ekki. Hótelstjóri hefur verið frá upphafi Ingólfur
Pétursson.
AD NEDAN: Hótel Garður. Undanfarin 3 ár hefur Stúdentaráð Háskóla
Islands haft með höndum rekstur sumarhótels á Stúdentagörðunum.
Hefur reksturinn gengið vel og þjónusta þótt góð. A þessum þremur
árum hafa miklar umbætur verið gerðar á Hótel Garði og fleiri eru á
döfinni. A Hótel Garði eru 90 herbergi með 165 rúmum. Hótelstjórar eru
Hörður Sigurgestsson og Steinar Berg Björnsson.