Frjáls verslun - 01.06.1963, Qupperneq 20
Óttar Möller, íorstjóri:
Farþegaf luf n ingar Eimskips
Frá upphafi hefur það verið annar meginþáttur-
inn í starfsemi Eimskipafélagsins að annast um
farþegaflutninga, bæði milli íslands og annarra
landa og milli liafna við strendur landsins. Fyrstu
skip félagsins voru smíðuð með allmiklu farþega-
rými, es. „Gulljoss“ var með rúm fyrir 74 farþega
og es. „Goðafoss“ fyrir 56 farþega. Töldust bæði
þessi skip farþegaskip, jafnframt því að þau voru
vöruflutningaskip. Var svo einnig um önnur þau
skip, sem félagið lét smíða fyrstu áratugina. En
bættar samgöngur á landi og auknar flugsamgöng-
ur, bæði innanlands sem á leiðum milli landa, hafa
á síðari árum leitt til þess að þörfin fyrir farþega-
rými í skipum hefur minnkað og hagar félagið nú
útbúnaði og innréttingum skipa sinna samkvæmt
því.
Ms. „Gullfoss“ er eina skip Eimskipafélagsins,
sem smíðað er sem farþegaskip, með rúm fyrir 209
farþega. Skipið er einnig ætlað til vöruflutninga
og hefur burð fyrir um 11—12 hundruð tonn af
vörum. Onnur skip félagsins, ellefu að tölu, eru öll
smíðuð sem vöruflutningaskip en hafa rými fyrir
samtals 58 farþega. Fjögur skipanna eru með rúm
fyrir 12 farþega hvert, fimm með rúm fyrir 2 far-
þega en tvö skipanna eru ekki með farþegarúm.
Skip félagsins flytja árlega um 7000 farþega milli
landa og er þáttur „Gullfoss“ að sjálfsögðu stærst-
ur í þeim flutningum. „Gullfoss“ er smíðaður árið
1950 og hefur nær alltaf frá þeim tíma verið í för-
um milli Reykjavíkur og Kaupmannahafnar með
viðkomu í Leith og í Hamborg um vetrartímann.
Veturinn 1950—1951 var skipið leigt frönsku skipa-
félagi til siglinga með vörur og farþega milli Bor-
deaux og Casablanca, og árið 1953 fór það eina
ferð frá Reykjavík til Miðjarðarhafslanda. Far-
þegarými skipsins hefur að heita má allt frá því
fyrsta verið fullskipað farþegum yfir sumarmánuð-
ina, en þegar ferðamannastraumur er minni yfir
90
vetrartimann, hefur farþegafjöldinn af skiljanleg-
um ástæðum ekki verið ýkja mikill. „Gullfoss" hef-
ur flutt 84.419 farþega milli landa og eru þá taldir
með þeir 5629 farþegar, sem skipið flutti milli
Bordeaux og Casablanca.
Síðastliðinn vetur voru fargjöld stórlækkuð með
„Gvllfoss“ á tímabilinu frá 1. nóvember til 31.
marz og þeim farþegum, sem ferðast vildu með
skipinu til Kaupmannahafnar fram og til baka í
sömu ferðinni var jafnframt boðið að gista og
borða um borð í skipinu í erlendum höfnum, án
endurgjalds. Ennfremur skipulagði félagið í sam-
ráði við ferðaskrifstofu ferðir í landi fyrir þá far-
þega, sem þess óskuðu. Nýbreytni þessi var gerð
til þess fyrst og fremst að stuðla að því að lands-
menn, sem að óbreyttu höfðu ekki mögulcika, eða
efni á því að sigla til útlanda, gæfist kostur á slíkri
ferð. Hin mikla aðsókn, sem varð að þessum ferð-
um, sýnir að þær voru vel þegnar og verða þær
teknar upp aftur í haust, fyrsta ferðin farin frá
Reykjavík 1. nóvember, með óbreyttu fyrirkomu-
lagi en örlítilli breytingu á fargjöldum. Má benda
á að þegar er fullbókað í tvær fyrstu ferðirnar.
Eins og tekið er fram að framan er eftirspurn
mikil eftir farþegarúmum með „Gullfoss“ og á
nokkrum mánuðum ársins meiri en annað verður.
í vetrarferðunum eru íslendingar í miklum meiri-
hluta meðal farþega, en sumarmánuðina er mikið
af erlendum ferðamönnum, sem ferðast með skip-
inu og hafa erlendar ferðaskrifstofur skipulagt hóp-
ferðir með skipinu til Islands árum saman.
í vor hefur verið gerð gagnger breyting á salar-
kynnum í „Gulljoss“. Innréttingar í reyksal 1. far-
rýmis hafa verið endurnýjaðar og er hann nú sem
nýr. Ennfremur voru gerðar lagfæringar á matsal
á 1. farrými. þá hefur 2. farrými verið endurnýjað
algjörlega, bæði salir og farþegaherbergi. Eftir þess-
Framh. á bls. 32
FRJÁL9 VRRZLUN