Frjáls verslun - 01.06.1963, Page 22
um Bandaríkin þver og endilöng.
Alls varði hann nítján árum æv-
innar til þessara sýningaferða um
hciminn. Hann fluttist hcim til
íslands árið 1927.
Er ég spurði Jóhannes hvenær
honum hafi fyrst hugkvæmzt að
hefja hótelrekstur, svaraði hann
á þessa leið: „Lengst af öll þessi
útivistarár mín bjó ég á hótelum.
Arið 1919 kom ég heim og gisti
þá á Hótel ísland hér í Reykja-
vík. Þar fékk ég þá flugu í höfuðið,
að þegar ég væri búinn að eign-
ast hundrað þúsund dollara, skyldi
ég koma heim og reisa fínt hótel
fyrir aurana. Svo liðu átta ár. Þá
hafði ég eignazt 104—5 þúsund
dollara, og þá hélt ég heim. Ég
fór að ræða málið við fyrirmenn,
en það virtist lengi vel enginn
bera á það neinn skilning, að við
hefðum nokkurn skapaðan hlut
við slíkt hótel að gera hér á landi.
Jónas Jónsson frá Hriflu var fyrsti
maðurinn, sem studdi mitt mál,
en hvorki ríkis- eða bæjarstjórn
né heldur bankastjórarnir vildu
sinna þessu. Ég var alveg að gef-
ast upp á þessu og að því kominn
að fara aftur af landi burt. En
loks rættist úr þessu. Ég afréð
loks að kaupa þessa lóð eftir mik-
ið umstang út af lóðum í grennd.
Ég fékk loks ríkisábyrgð, hóf verk-
ið, og miðaði svo áfram, að veit-
ingasalirnir voru opnaðir í des-
ember 1929 og gistihúsið fullbúið
á næsta ári. En það voru engir
gestir að heitið gæti. Svo fór, að
ég tók að leigja alþingismönnum
hótelherbergin, fremur en láta þau
standa auð, fyrir 60 krónur á mán-
uði yfir þingtímann. Hugsið þér
yður, ný hótelherbergi fyrir 60
krónur á mánuði,“ endurtekur
Jóhannes og hlær. „Það var fyrst
þegar brezki herinn kom, að hótel-
ið fór að bera sig. Eftir stríðið
hefur margt breytzt, ferðamanna-
straumurinn aukizt og á eftir að
gera gífurlega. En það er skemmst
af að segja, að ég seldi Hótel Borg
fyrir nokkrum árum á 18 milljónir
og 300 þúsund krónur, sem var
allt of lítið verð. Næst sanni hefði
verið 43 milljónir, því að 1930
kostaði Borgin 1,6 milljón. En
þrátt fyrir það, að ég gæti ekki
selt hana á nándar nærri sann-
virði, tel ég mig mjög heppinn
að hún kæmist í hendur þeirra
manna, sem nú eru eigendur henn-
ar. Það er einkennileg tilfinning,
sem maður hefur gagnvart dauðum
hlutum, sem hugur manns hefur
lengi snúizt um og starfsorkan.
Þeir eru eins og manns eigin krakk-
ar. Þetta þekkja útgerðarmenn og
skipstjórar gagnvart bátunum sín-
um. Og hvernig verða ekki hest-
ar og önnur dýr oft og tíðum eins
og óaðskiljanlegir vinir og með-
limir fjölskyldunnar? Ef nauðsyn
krefur að láta þau frá sér, er fyrir
öllu, að þau hafni í góðra hönd-
um,“ sagði Jóhannes að lokum.
TIL VINSTRI: í höiuðstað Norðurlands, Akureyri. eru nokkur hótel og þeirra stærst Hótel KEA, sem
til skamms tíma heíur verið rekið a! kauptélaginu en er nú leigt einstaklingi, Brynjólfi Bryniólfssyni.
Hótel KEA rúmar 60 gesti. Hótel Akureyri, sem einnig er rekið af Brynjólfi Brynjólfssyni, rúmar um
40 manns og þriðja hótelið á Akureyri er Hótel Varðborg, sem hefur rúm fyrir 46 gesti. —
TIL HÆGBI: Eitt glæsilegasta sumarhótel á íslandi er án efa Bifröst í Borgarfirði. sem starfað
hefur nú í nokkur sumur við sívaxandi vinsældir. Bifröst rúmar um 70 gesti.
22
FRJÁLSVEKZLUN