Frjáls verslun - 01.06.1963, Blaðsíða 32
Farþegaflutningar Eimskips
Framh. af bls. 20
ar breytingar eru farrými skipsins hin nýtízkuleg-
ustu. Það liefur vakið aðdáun allra, sem séð hafa
skipið, hversu vel hefur til tekizt með breyting-
arnar.
Enda þótt þáttur vöruflutningaskipa félagsins
sé ekki stór í farþegaflutningunum, má geta þess
að systurskipin, „Goðafoss", „Dettifoss“ og „Lag-
arfoss“, eru búin farþegarúmum fyrir 12 farþega
hvert, eins og áður er sagt. Þessi skip eru rómuð
af öllum sem með þeim hafa ferðazt fyrir góðan
aðbúnað, björt og rúmgóð farþegaherbergi, og vist-
lega sali. Hins vegar hafa nokkrir erfiðleikar verið
á því að bóka farþega í þessi skip fyrirfram, vegna
þess hve siglingar þessar eru háðar vöruflutninga-
þörfinni.
Kvöldverður í Viðey sumarið 1809
Framh. af bls. 28
mynd um, hvað á eftir kæmi. En ekki höfðum
við fyrr lokið við af báðum súpudiskunum en
komið var með tvo stóra laxa, soðna og skorna í
sneiðar og með brætt smjör, sem leit út eins og
olía ,blandað ediki og pipar. Þetta var mjög gott
á bragðið, og þegar við höfðum með einhverju móti
tæmt diskana, vonuðum við sannarlega, að máltíð-
inni væri lokið. En því var nú ekki að heilsa. Þá
var borin inn stór skál sneisafull af kríueggjum
harðsoðnum, og voru tólf sett á diskinn hjá hverjum
manni. Fyrir sósu höfðum við stórt ker með sykr-
uðum rjóma, og voru þar í fjórar skeiðar, sem við
átum með allir úr sömu skálinni, sem stóð á miðju
borði. Við tróðum í okkur, með hinum mestu erf-
iðismunum, eggjunum og rjómanum, en ekki höfð-
um við fyrr rétt frá okkur diskana, en steikt sauð-
arkrof var borið inn og sykruð njólastappa með.
En ekki var allt búið enn. Þá kom inn fullt fat af
vöfflum sem voru hálfur þumlungur á þykkt og
á stærð við bók i áttablaða broti. Jafnharðan var
framreitt kex og flatkökur, og með þessu vorum
við tilneyddir að þamba rauðvín úr gímalds
vatnsglösum og ekki hætt fyrr en hver hafði
tæmt sitt glas. Síðan kom bragðgóður réttur og
treystum við því, að nú væri þetta loks á enda.
En það var öðru nær. Þá var hafin drykkjan, bor-
in inn stór skál með rommpúnsi og kollum haldið
óspart að mönnum, minni drukkið með hverju
glasi. Enn kom kyrna mikil full af púnsi, og það
var rétt með herkjum, að við komumst hjá að
tæma hana alveg. Við vorum þá tilneyddir að
skipa mönnum okkar að hafa bátana til taks, og
þegar við höfðum Ioks rennt niður þrem tebollum
ofan á allt hitt, kvöddum við þennan einstaka
gestgjafa og hélduin til Reykjavíkur. En því var
ekki að leyna, að við vorum svo miður okkar eftir
átið, að ég gat ekki gengið alla leið til gistihúss
míns um kvöldið og var nokkurn tíma að jafna
mig eftir þessa makalausu kvöldmáltíð.
Þurfum að lengja ferðamannatímann
Framh. ai bls. 19
erlendir ferðamenn, sem lcggja inn pantanir mörg-
um mánuðum fyrirfram, um jólin og upp úr ára-
mótum, er víst ekki fjarri sanni, að margir þeirra
noti jólafríið til að leggja drög að því, hvar og
hvernig skuli eyða sumarleyfi og draga síðan ekki
að leggja inn pantanir. Af þessari reynslu höfum
við orðið að taka upp þann hátt, að hafa sumar-
áætlunina tilbúna ekki síðar en í nóvember.“
— Það er margt um útlendinga hér þessa dag-
ana?
„Já, nú þegar Ilótel Saga er komin í gagnið með
!)() herbergi og 150 rúmum, cr hver bás fullskipað-
ur. Þegar hér var opnað í fyrra, heyrðust þær
raddir, að þetta yrði aldrei notað. En um daginu,
]>egar útlendur fulltrúi okkar kom í heimsókn án
þess að gera boð á undan sér, reyndist ómögulegt
að koma manninum fyrir, hvorki hér á Hótel Sögu
né öðru hóteli. Það sýnir ljósast, að æ fleiri sækja
hingað með hverju nýju sumri. Fólk í flestum lönd-
um fær frítíma sinn lengdan, og ferðamannastraum-
urinn færist alls staðar í aukana, hér sem annars
staðar.“
Nýtt vandað vegakort
Nýkomið er vegakort íslands á vegum Skelj-
ungs hf. Höfundur þess er Ágúst Böðvarsson land-
mælingamaður, Hörður Ágústsson listmálari sá um
útlit og gerði kápumynd. Kortið er í höfuðdráttum
með líku sniði og vegakort þau erlend, sem Shell
og önnur olíufélög gefa út víða um heim.
Vegalengdir eru samkvæmt nýjustu mælingum,
og sýndar í löngum og stuttum áföngum, allt niður í
5 km, svo að auðvelt er fyrir ókunnuga að rata.
32
FRJÁLSVERZLUN