Frjáls verslun - 01.01.1966, Síða 4
IA ■ \mé I H L m j i JgfjfPr j
Htyib,
Frá aðalfundi Verzlunarbanka íslands 2. apríl sl. Á myndinni sjást m. a. þeir Eggert Kristjánsson.
Ámi Ámason, Egill Vilhjálmsson og Sigurður Egilsson.
Ný og bætt húsakynni
— Hlutafé bankans var ákveðið 12 milljónir kr.
og voru hluthafar liðlega 600 talsins.
— í fyrstu stjórn Verzlunarbanka íslands voru
kjörnir þeir sömu menn og átt höfðu sæti í stjórn
sparisjóðsins frá upphafi, þeir Egill Guttormsson,
Þorvaldur Guðmundsson og Pétur Sæmundsen.
— Jafnframt því, að Verzlunarbankinn yfirtók
starfsemi Verzlunarsparisjóðsins var fyrirtækiuu
fenginn nýr og betri húsakostur, og var starfsemin
flutt í Bankastræti 5, en þar er bankinn t.il húsa í
dag, sem kunnugt er, og hefur keypt þá húseign fyrir
starfsemi sína.
— Verzlunarbankinn tók til starfa 8. apríl 1961.
Þegar bankinn yfirtók starfsemi sparisjóðsins námu
innistæður 160 milljónum króna, en í lok sl. árs
námu þær 545 milljónum króna. Eins og þessar tölur
bera með sér hefur verið ör vöxtur í allri starfsemi
bankans, og má segja að með bankastarfseminni
undanfarin 10 ár hafi verið lagður grundvöllur að
framtíðarstarfsemi Verzlunarbanka íslands.
Ýmis jóm í eldinum
— Hvað mál eru helzt á döfinni hjá bankanum
um þessar mundir?
— Stöðugt er unnið að könnun á frekari starfs-
möguleikum og hefur bankinn þegar stofnað til
reksturs tveggja útibúa, annars að Laugavegi 172
í Reykjavík, en hins í Keflavík. Innan skamms
verður og opnuð afgreiðsla fyrir bankann í nýju
Umferðarmiðstöðinni við Ilringbraut.
— Þá hefur undanfarin ár verið unnið að tillög-
um um stofnlánadeild við bankann og liggur nú
fyrir Alþingi frumvarp til laga um heimild fyrir
bankaráð að stofna sérstaka deild við bankann, er
hafi það að meginverkefni að styðja verzlun lands-
manna með hagkvæmum stofnlánum. Eru vonir
bundnar við að takast megi að finna slíkri deild
starfsgrundvöll að því er tekur til fjármagns.
— Þá er því ekki að leyna, að bankinn bindur
miklar vonir við að rýmkaðar verði þær reglur, sem
hér gilda og hafa gilt um erlend bankaviðskipti,
með það í huga að bankinn geti fljótlega öðlast
4
FRJÁLS VERZLUN