Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1966, Blaðsíða 7

Frjáls verslun - 01.01.1966, Blaðsíða 7
V. R. hefur gert frá upphafi. Félagið varð þá að heyja fyrsta verkfall sitt, sem stóð yfir í fjóra daga, og má segja, að útkoma þeirrar samningsgerðar hafi orðið sú, að gerð var meiri eða minni breyting á svo að segja hverri einustu grein eldri samningsins. Voru þessar breytingar allar félagsmönnum í hag og má nefna sem dæmi, að tekin var upp ný flokkaskipan, sem var meira í samræmi við ríkjandi aðstæður í verzlunum og á skrifstofum. Þá var tekin upp nýr launaskali, sem fól í sér 43% meðalhækkunr orlofs- réttindi ukust verulega og vinnutími var styttur, svo nokkuð sé nefnt. Félagsfólk sýndi mikinn fé- lagsþroska í þessu fyrsta verkfalli V. R. og er það félaginu ómetanlegur styrkur, sem auðvelda mun að fylgja eftir þeim verkefnum, sem framtíðin ber í skauti sér. Fjölgun félagsmanna Við skiptingu félagsins 1055 fóru af félagsskrá um 500 manns, en það voru vinnuveitendur og fram- kvæmdastjórar. Við það urðu um 1000 manns eftir í félaginu. — Á félagsskrá V. R. voru í árslok 1905 3651 karl og kona, þannig að félagsmannatalan hef- ur rúmlega þrefaldazt á einum áratug. Er hér vissu- lega um mikla aukningu að ræða, sem stafar m. a. af því, að samningarnir eru orðnir mun víðtækari en áður var og félagssvæðið hefur stækkað til muna — tekur nú yfir Reykjavík, Kópavogskaupstað, Seltjarnarnes-, Mosfells-, Kjalarnes- og Kjósar- hrepp. Þá hefur það að sjálfsögðu stuðlað að fjölgun félagsmanna, að á síðustu 15 árum hafa risið upp ný og stór fyrirtæki, sem þarfnast mikils fjölda verzl- unar- og skrifstofufólks í þjónustu sína. Nægir að nefna sem dæmi Flugfélags íslands hf., Loftleiðir hf. og tryggingafélögin. Þá hafa risið hér upp á síð- ustu árum stórar kjörbúðir, sem krefjast mikils vinnuafls, en fjölgun þeirra er i samræmi við þróun og stækkun borgarinnar. Þess má geta til gamans að um helmingur félaganna í V. R. er kvenfólk og er 64% félaganna 40 ára og yngri, en þar af eru 10% innan við tvítugsaldur. Stofnun Lífeyrissjóðs verzlunarmanna Eitt af mestu hagsmunamálum verzlunarfólks var stofnun Lífeyrissjóðs verzlunarmanna fyrir tíu ár- um. í Lífeyrissjóði verzlunarmanna voru um síð- ustu áramót um 1800 sjóðfélagar. Heildareign hans var þá 95,5 millj. kr. Hefur sjóðurinn eflzt mjög á síðustu árum og ukust nettóeignir hans 1965 um 25 millj. króna. Megintilgangur sjóðsins er að sjálf- sögðu að veita félagsmönnum lífeyri allt að 60% miðað við meðallaun síðustu 10 árin, sem viðkom- andi tekur laun. Einnig er veittur úr honum maka-, barna- og örorkulífeyrir. Fé sjóðsins hefur verið ávaxtað þannig á undan- förnum árum, að sjóðfélagar hafa fengið lán i sam- bandi við íbúðakaup, og var á síðasta ári úthlutað 250 þús. kr. og veitist út á 1. veðrétt. Ileildarútlán sjóðsins frá upphafi eru um 90 millj. króna. 1 stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna eru: Hjört- Stjórn V. R. 1966—1967. Sitjandi irá vinstri: Björn Þórhallsson, gjaldkeri, Guðmundur H. Garðars- son, formaður, Magnús L. Sveinsson, varaformaður og Hannes Þ. Sigurðsson, ritari. Standandi frá vinstri: Richard Sigurbaldursson, Helgi E. Guðbrandsson, Grétar Haraldsson, Ottar Októsson. Bjarni Felixson og Halldór Friðriksson. KR.IÁLS VERZLHN 7

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.