Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1966, Page 14

Frjáls verslun - 01.01.1966, Page 14
álíka há og í hreppnum, undu menn því ekki leng- ur, að fá ekki að ráða málefnum staðarins sjálfir. Fyrir aðskilnaðarhreyfingunni stóðu þeir Lárus A. Snorrason, verzlunarstjóri, Páll Hansen, assistent, Hinrik Sigurðsson, skipstjóri og Daníel A. Johnsen, verzlunarstjóri, en þeir höfðu átt í deilum við hrepp- stjórann. Þessir menn voru allir fulltrúar hinnar nýju kynslóðar íslenzkra athafnamanna, en dönsku kaupmennirnir, eða umboðsmenn þeirra höfðust ekki að í aðskilnaðarmálinu. Samningur milli Eyrarhrepps og ísafjarðar um aðskilnað var samþykktur á almennum fundi hreppsbúa þann 3. nóvember 1862, eftir að samn- inganefndir frá báðum aðilum höfðu starfað. Var þar skipt að jöfnu hreppsþyngslum, eignum og skuldum. Fyrir hönd bæjarfélagsins höfðu þessir menn unn- ið að samningsgerðinni: Hjálmar Jónsson, borgari, Hinrik Sigurðsson borgari og skipstjóri, og J.árus A. Snorrason., verzlunarstjóri. Niðurlag samningsins var á þessa leið: „Að um allt það, sem getur miðað báðum þessum félögum til heilla, eins og hverjum nœrliggjandi sveitarjélög- um, ber okhur með eindrœgni og kœrleikum að styðja hvort annað eftir megni og kringumstœðum“. Þegar þessi samningur hafði verið gerður kusu Tangamenn sér fulltrúa, sem þeir nefndu „bæjar- stjóra“, og eru þeir í raun réttri fyrstu bæjarfull- trúarnir hér á staðnum, þótt ckki væru þeir kosnir samkvæmt lagafyrirmælum. I’essir menn voru: Jens Kristján Arngrímsson, járnsmiður, Hjálmar Jónsson, borgari, Ilinrik Sig- urðsson, borgari, og Lárus Á. Snorrason, verzlunar- stjóri. Kom það í hlut þessara manna að vera í fyrir- svari fyrir Tangabúa þar til lögleg bæjarstjórn komst á laggirnar 1866, og leystu þeir þann vanda af hendi með ágætum. í söguriti því, sem Jóhann Gunnar Ólafsson, bæjarfógeti, er um það bil að Ijúka, er þessara merku manna sérstaklega getið og ferill þeirra rak- inn svo sem kostur er. Eftir að samningurinn hafði náðst 1862 um að- skilnað kaupstaðarins og hreppsins upphófst lang- vinn barátta fyrir því að fá lögskilnaðinn lögfest- an, og lauk henni ekki fyrr en þann 26. janúar ár- ið 1866. Bogi Thorarensen var um þetta leyti settur amt- maður í vesturamtinu. Þegar til hans var leitað, um að láta aðskilnaðarsamninginn koma til fram- kvæmda benti hann réttilega á nauðsyn þess, að hann yrði lögfestur. Til þess að fá því framgengt völdu ísfirðingar sjálfir þá leið, að snúa sér til Alþingis, þótt það hefði á þeim tíma aðeins ráðgjafarvald, en Jón Sigurðsson var þá þingmaður ísfirðinga, og hans forsjá treystu þeir bezt. Bænarskráin var síðan send Alþingi þann 28. febrúar 1863, eins og ég gat um í upphafi. Helztu rökin, sem þar eru fram talin fyrir því, að staðurinn verði bæjarfélag og lögsagnarumdæmi sér eru m. a. þessi: Mikil vöxtur bæði í íbúa- og húsatölu, vaxandi verzlun bæði við landsmenn og útlenda, fjölgun iðngreina og margbreyttari þarfir íbúanna. Þá er á það bent, að verzlunarstaðurinn eigi 400.725 ferálna lóð, sem hann fékk útmælda 1787. Þar væru nú komnar 5 verzlanir í stað þriggja áður, og tuttugu íveruhús með 34 fjölskyldum og 214 manns. Orðrétt segir í bænaskránni að lokum: „Að innbúar verzlunarstaðarins geti borið sig sem félag sér virðist meðfylgjandi útdráttur af hrepps- bókinni að bera með sér, hvar sameiginlegar út- giftir hreppsins í sex ár hafa að meðaltali verið 70 vættir 28 fiskar, og inngjöld frá verzlunarstaðnum 40 vættir 20 fiskar“. Bænaskráin var undirrituð 34 nöfnum og send Jóni Sigurðssyni. alþingismanni ísfirðinga, og fékk hann Halldór Kr. Friðriksson til að flytja málið á Alþingi 1863, þar eð hann gat þá ekki sjálfur mætt þar. Afgreiddi Alþingi málið í bænarskrárformi til kon- ungs, og féllst hann á, að það skyldi ná fram að ganga. Þann 23. október 1863 var amtmanninum í vesturamtinu falið að annast framkvæmdir. Skyldu íbúar Eyrarhrepps kvaddir saman til fundar og mál- ið allt reifað fyrir þeim. Að því loknu skyldi velja sex manna nefnd til þess að semja reglugerð um bæjarstjórn á ísafirði og stofnun bvggingarnefndar. Skyldi þessi nefnd hafa til hliðsjónar reglugerðir varðandi Akureyri frá 6. janúar 1857 og 29. ágúst 1862, en þá hafði verið komið þar á byggingarnefnd og bæjarstjórn. Amtmaður fól sýslumanui, Stefáni Bjarnarsyni, framkvæmdir, og ritaði sjálfur borgurunum á ísa- firði bréf 5. desember 1863 á þessa leið: „Þegar ég í sumar eð leið var á meðal vkkar, heiðruðu ísfirðingar, var mér hin mesta ánægja á fundi þeim, sem ég hélt með ykkur, að sjá og heyra að þið höfðuð einlægan ásetning til að efla heillir 14 FR.TÁLS VKRZLUN

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.