Frjáls verslun - 01.01.1966, Qupperneq 18
Eitt fyrsta vélknúna skipið ó ísafirði
og þurrkaður, en þegar síðari heimsstyrjöldin hófst
breyttust atvinnuhættir og var þá mestallur fiskur-
inn seldur ísvarinn úr landi. Eftir styrjöldina jókst
framleiðsla hraðfrystihúsanna og hafa þau verið
langstærstu atvinnufyrirtækin í bænum á síðustu
árum, — í kaupstaðnum eru þrjú hraðfrystihús og
hafa tvö þeirra verið rekin af miklum myndarbrag.
Hraðfrystihúsin eru stórar og rúmgóðar byggingar,
búin góðum vélum og tækjum og er aðbúnaður
fólksins, sem þar vinnur með ágætum.
Niðursuðuiðnaður er í miklum framförum, þrjár
niðursuðuverksmiðjur eru starfræktar og er rækjan
aðalframleiðsla þeirra. Ef skynsamlega væri búið
að þessum atvinnurekstri, er enginn vafi á að hann
á eftir að aukast og verða miklu stærri þáttur í út-
flutningsframleiðslu þessa bæjarfélags og þjóðar-
innar í heild.
í bænum eru tvær fiskimjölsverksmiðjur og vann
önnur þeirra á sl. ári nokkurt magn af síld.
Þegar sagt er frá útgerð og fiskiðnaði í þessum
bæ, er jafnframt skylt að segja frá höfninni. — Inn-
siglingin er að vísu þröng, en þegar komið er inn
úr Sundunum eru skip komin í einhverja þá beztu
höfn, sem til er frá náttúrunnar hendi. Hafnar-
mannvirki eru nýleg og traust. Viðleguplássið fyrir
stærri skipin við hafnarbakkann er um 220 metrar,
og í bátahöfninni er viðlegupláss um 312 metrar.
Skipakomur eru miklar og voru þær á sl. ári, sem
hér segir: 243 farþega- og flutningaskip, 255 togarar,
þar af aðeins 13 íslenzkir, 203 íiskiskip önnur, aðrir
en heimabátar og 59 varðskip og erlend eftirlit.sskip.
Útgerðin nýtur góðrar þjónustu iðnaðarins. Hér er
ný og fullkomin dráttarbraut, vélsmiðjur, rafvirkj-
ar, viðgerðarmenn öryggis- og fiskileitartækja, kaf-
ari og netagerð. — Má fullyrða að sá mikli fjöldi
skipa, sem hingað leitar, kemur að verulegu leyti
fyrir það að hér er góð viðgerðarþjónusta fyrir
skipin.
Útvegsmenn og fiskvinnslustöðvar hafa samtök
með sér um alla Vestfirði hver á sínu sviði. Útgerð-
armenn í Útvegsmannafélagi Vestfjarða, frystihúsin
í félagi fiskvinnslustöðva á Vestfjörðum, skreiðar-
framleiðendur í samlagi vestfirzkra skreiðarfram-
leiðenda, og sjómenn og verkamenn í Alþýðusam-
bandi Vestfjarða. Iíafa öll þessi samtök orðið til
mikils gagns, og látið margt gott af sér leiða. Það
er ekki sízt vegna þeirra að sá skilningur er nú orð-
inn ríkjandi að félagssamtök séu nauðsynleg og
18
FRJÁLS VERZLUN