Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1966, Blaðsíða 2

Frjáls verslun - 01.06.1966, Blaðsíða 2
Þórhallur Ásgeirsson: EFTA og ísland Erindi flutt á ráðstefnu VarSbergs 17. marz 1966 Mér er sérstök ánægja að fá tækifæri til að taka þátt i þessari ráðstefnu um EFTA. TJmræðuefnið er mjög tímabært, því að nauðsynlegt er að ui)p- lýsa sem flesta um þau vandamál, sem við eigum í vaxandi mæli við að stríða vegna tilkomu mark- aðsbandalaganna, svo að við getuvn gert okkuir grein fyrir, hvernig við eigum að bregðast við þeim. Það er til einskis að segja, að við séum á móti márkaðsbandalögum. Þau eru staðreýnd, sem við vefðum að taka tillit til, hvort sem okkur líkar betur eða verr. EFTA var stirax í upphafi spáð stuttri ævi, en hefur nú þcgar lifað í meir en 5 ár. I þessu sambandi dettur inér í hug sagan um Mark Twain, þegar hann las um andlát sitt í blaði. t------------------------------------------- EFTA og ísland / marzrriánuði sl. ejndi jélagið Varðberg til ráðstejnu, þar sem fjallað var um Island og Fríverzlunarbandalag Evrópu. har sem viál þetta er eitt þeirra, sem ejst eru á baugi hér, þótti rétt að birta hér á einum stað erindi þau, sem á ráðstejnunni voru jlutt af Þórhalli Asgeirssyni, ráðuneytisstjóra, Björgvin Gnð- mundssyni, viðskiptajræðingi, Hilmari Fenger, jorm. Fél. ísl. stórkaupmanna, Guðmundi //. Garðarssyni, viðskiptafrœðingi og Gunnari J. Friðrikssyni, form. Fél. ísl. iðnrekenda. --------------------------------------j Hann sendi strax tilkynningu til blaðsins, sem hljóð- aði svo: „Fregnin um andlát mitt er stórkostlega ýkt. Mark Twain.“ Forsaga Áður en ég' fer að ræða EFTA-málin og Island, tel ég rétt að rekja í stuttu máli, hver afstaða okk- ar hefur verið til fríverzlunar Evrópu frá því að sú hugmynd var fyrst rædd á breiðum grundvelli á vegum OEEC í París á árunum 1956—’58. Eins og kunnugt er, slitnaði upp úr viðræðunum, sem við tókum þátt í, í árslok 1958, er það kom í ljós, að Frakkland krafðist þess, að aðildarríki fríverzlunar- svæðisins tæki á sig sömu skuldbindingar og EBE- Iöndin að Jiví er varðar sameiginlegan ytri toll gagnvart öðrum ríkjum og sameiginlega stefnu í landbúnaðarmálum. Þarna kom strax fram sá grund- vallarmunur á afstöðu Vestur-Evrópulanda til ann- ars vegar friverzlunarbandalags og hins vegar efnahagsbandalags, og er sá klofningur við líði enn í EFTA og EBE. í þessum umræðum í París bent- um við á hin sérstöku vandamál okkar, sem flest eru þau sömu i dag og þá, án jiess að taka afstöðu með eða móti fríverzlunarhugmyndinni. Ári seinna reis svo EFTA upp úr rústum þessara samningaviðræðna en í þeim hafði verið rætt ræki- lega um öll atriði EFTA-sáttmálans. Að EFTA stóðu sjö OEEC-lönd, sem ekki voru í Efnahags- bandalaginu — en fjögur OEEC-Iönd urðu alveg utan garðs, ísland, írland, Grikkland og Tyrkland. 2 FRJÁLS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.