Frjáls verslun - 01.06.1966, Side 10
af hverri útflutningseiningu, sein fer inn á hrezka
markaðinn.“
Reynt hefur verið að ná sams konar tollalækkun
fyrir íslenzkan freðfisk í Bretlandi eins og EFTA-
löndin hafa fengið. Fór Guðmundur 1. Guðmunds-
son, utanríkisráðherra, fram á þetta i viðtali við
brezka utanríkisráðherrann, Butler, í október 1963.
Var málið síðar rætt nokkrum sinnum af ráðhenr-
unum, en ])að bar engan árangur. Var tilmælum
okkar algjöilega synjað sumarið 1964. Má því tclja
útilokað, að við getum fengið tollfríðindi fyrir freð-
fisk i Bretlandi nema gerast aðilar að EFTA.
Niðursuðuverksmiðjurnar hafa líka áhyggjur yfir
þróun markaðanna í Evrópu og leyfi ég mér að lesa
hér með upp bréf frá framkvæmdastjóra Félags
islenzkra niðursuðuvenksmiðja til Viðskiptaráðu-
neytisins:
„Við viljum levfa okkur að benda á, að með til-
komu EFl'A og EEC er aðstaða fslendinga til
samkeppni á erlendum mörkuðum, orðin mjög erf-
ið, og fer síversnandi.
Ti! dæmis í Bretlandi, þar sem aðal keppinautar
okkar, á sviði niðursuðu, eru Danir og Norðmenn,
eoru okkar vörur háðar 5—10% tolli, en vörur keppi-
nautanna tollfrjálsar.
Tnnan Efnahagsbandalags Evrópu fara tollar milli
meðlimalandanna sílækkandi, en aftur hækkandi á
okkar vörum, og nema nú 16—40%. Hins vegar
geta lönd þessi flutt inn, oft tollfrjálst hráefni frá
okkur, fullunnið það, og flutt landa á milli sem
sína eigin framleiðslu, og gera þetta nú þegar í
stórum stíl.
Hér virðist ekki annað vera framundan, en að
við verðum algjörlega hraktir út af þessum mörk-
uðum, ef ekki tekst að gera eitthvað, til þess að
leysa þennan vanda.“
Ekki er hægt að áætla með neinni vissu skcrð-
ingu útflutningstekna okkar vegna tollamismunar-
ins í EFTA-löndum. Það þýðir ekkert að byggja
slíka áætlun á útflutningsskýrslum síðustu ára, því
að útilokað er að sjá fyrir þá miklu breytingu, sem
óhjákvæmilega verður á viðskiptunum við það, að
tollarnir Iækka. Þó má benda á, að tekjutap okkar
vegna tollamismunarins í Bretlandi, miðað við út-
flutning ársins 1965 og væntanlega tolla næsta árs,
er talið, að hafi numið um 40 millj. króna. Þessi
upphæð gefur þó engan veginn rétta mynd af þeim
hagnaði, sem útflutningurinn getur átt von á að
hljóta, þegar allar tollalækkanir yrðu komnar til
framkvæmda.
Ef Island ætlaði að gerast aðili að EFl'A, myndi
að sjálfsögðu verða lögð á það áherzla að fá sem
flestar sjávarafurðir undir EFTA-sáttmálana. Ef
það tækist ekki, yrði reynt að tryggja sérfríðindi
fyrir bæði sjávarafurðiir og landbúnaðarafurðir (t. d.
kindakjöt) í sérstökum tvíhliða samningum mið
einstök EFTA-lönd, en fordæmi fyrir því eru tví-
hliða samningar, sem t. d. Danir hafa gert um sölu
landbúnaðarafurða. Aðstaða íslands til að semja um
einhver fríðindi til viðbótar því, sem EFTA-sátt-
málinn gerir ráð fyrir, má teljast sæmileg, þar sem
t. d. Norðurlöndin yrðu væntanlega aðnjótandi
meiri tollfríðinda vegna sinna vara, sem seldar eru
til íslands, heldur en við fengjum á móti vegna
útflutnings okkar til þeirra.
Allflestir íslendingar telja norræna samvinnu
æskilega, en hversu margir þeirra gera sér grein
fyrir því, að þungamiðja norrænnar samvinnu er
nú á sviði viðskiptanna og það innan EFTA. Ef
ísland heldur sér þar fyrir utan, á það á hættu að
einangrast smám saman frá samstarfi Norðurland-
anna, og myndi það geta liaft óæskilegar afleiðing-
a<r. Á Norðurlöndunum er algjör samstaða um
EFTA og enginn flokkaágreiningur. Er það álit
allra Norðurlandamanna, að EFTA hafi verið þeim
til góðs og mikil lyftistöng fyrir atvinnulífið. Norð-
urlöndin myndu eflaust vilja greiða götu íslands
inn í EFTA, þótt þau teldu sig ekki hafa mikinn
viðskiptalegan ávinning af slíkri aðild.
Norðurlöndin hafa nú vaxandi áhyggjur yfir þró-
un EBE, sem hefuir torveldað þeim viðski]úin sér-
staklega síðasta árið. Fyrir þessi lönd fer það að
verða áríðandi, að það takist að brúa bilið milli
EFTA og PvBE — en ef ísland á að ganga í PTF'TA
— er það áríðandi að ákvörðun um það verði tekin
fljótt, áður en EFTAlöndin verða á ný önnum
kafin við undirbúning að samningi við EBE og
því áhugalítil um okkar örlög. Ilvenær eða hvort
slíkiir samningar hefjast er ómögulegt að spá nokkru
um á þessari stundu. í þessum mánuði sagði fram-
kvæmdastjóri EFTA, Sir John Coulson, í ræðu í
London, að engar horfur væru á því, að EBE myndi
taka við nýjum aðilum fyrir 1970. En í þessari viku
lýsti franski utanríkisráðherrann því yfir, að hann
sé hlynntuir aðild Bretlands að EBE og í framhaldi
af því staðfesti brezki utanríkisráðherrann í dag,
að öll EBE-lönd væru nú á sömu skoðun um inn-
göngu Bretlands í EBE. Er því ógerlegt að segja
nokkuð með vissu hver þróunin verður. En það
ættum við að geta lært af reynslunni, að láta ekki
10
FRJÁLS VERZLUN