Frjáls verslun - 01.06.1966, Qupperneq 21
Sl. 5 ár hefur árlegur meðalútflutningur á frystum
fiskflökum til Bretlands verið 7.061 og til Sovét-
ríkjanna 13.100 tonn (Bandaríkin 24.594 tonn).
Miðað við þennan árlega meðalútflutning, markaðs-
verð í Sovétríkjunum eins og það er í dag, brczka
verðið, sem ekki hefur breytzt frá sl. ári plús 8%
sem er tollamismunur gagnvart norskum og dönsk-
um flökum þá skila sovétviðskiptin betri viðskipta-
kjörum.
Það er þess vegna á misskilningi bvggt, að því
skuli vera haldið fram að þýðing Austur-Evrópu
fyrir íslenzka útflutningsframleiðslu hafi farið stór-
lega minnkandi síðustu árin. Það má segja, að um
magnsaindrátt hafi verið að ræða, en í útflutningi
þýðingarmikilla afurðategunda, eins og síldarafurða
og frystra sjávarafurða, hefur Austur-Evrópa þýð-
ingu, sem nokkurs konar jafnvægissvæði gagnvart
öðrum mörkuðum. Það er rétt og gleðilegt að mark-
aður hefur farið sívaxandi og batnandi fyrir freð-
fisk í Bandaríkjunum, en því er því miður ekki
að heilsa í Vestur-Evrópu, þó að eitt og eitt ár
hafi verið hagkvæmt í Bretlandi.
Um lið 3 og 4, sem ég drap á hér áðan — fyrir-
vara Breta í sambandi við innflutningskvóta á
frystum fiskflökum og fiskveiðilögsögu — landhelg-
ina og atvinnurekstrarrétt útlendinga, get ég verið
stuttorður. Hvorugt þessara atriða tel ég vera nægi-
lega skýr og ótvíræð i stofnsamningi né sérsamning-
um, sem ég hefi haft tök á að sjá, til að þau geti
verið íslenzkri útflutningsframleiðslu nægilega að-
gengileg. Um þessi atriði fást e. t. v. ekki nægilega
skýr svör, fyrr en komið væri að samningum um
upptöku íslands í EFTA, en álíta verður, að það
hljóti að vera æskilegt, vegna íslenzkra hagsmuna,
að um framkvæmd og skyldur íslands vegna þess-
ara ákvæða eða sérbókana í sambandi við EFTA-
samninginn, lægju fyrir skýr og ótvíræð svör, áður
en ákvörðun væri tekin um hugsanlega aðild ls-
lands að EFTA.
Að lokum. Það er mín persónulega skoðun, að
Islendingar eigi að flýta sér hægt að sækja um eða
gerast aðilar að erlendum hagsmunabandalögum,
og er sérstaklega þýðingarmikið að bíða átekta og
sjá, hver verður árangur liinna svonefndu Kennedy-
viðræðna.
-----------♦-----------
Hagvöxtur ráði afstöðu . . .
Framhald af bls. 18
anna á að hafa áhrif á utanríkisverzlun með breyt-
ingum á viðskiptahöftum, styrkjum og tollum. Við
hefðum að vísu óskert vald yfir gengisskráning-
unni, en þessar breytingar, sem ég nefndi, mundu
einmitt verða til þess, að við yrðum frekar að
bregðast við verulegum röskunum á greiðslujöfn-
uðinum með gengisbreytingum, heldur en ella
mundi vera. En einmitt vegna þess, hve gengis-
breytingar, réttara sagt gengislækkanir, eiga litlum
vinsældum að fagna meðal ráðamanna hér, er þess
að vænta, að aðild að EFTA mundi skapa nokkurt
aðhald í kaupgjalds- og verðlagsmálum hér innan-
lands.
Um nokkurn tímabundinn vanda verður sjálf-
sagt við að glíma fyrir heildsölu og verzlun yfir-
leitt, þegar tollalækkanir ciga sér stað, og er þá
nauðsynlegt að verzlanir séu vel á verði, til þess
að komast hjá tapi á vörubirgðum þegar varan
lækkar. Einnig þarf að gæta sín þegar tollar á vör-
um frá EFTA-löndum lækka, en ekki að sama skapi
á vörum frá löndum utan EFTA. Þá mun í mörg-
um tilvikum breytast hefðbundin verzlunarsam-
bönd og verða ósamkeppnisfær. Þetta hvorttveggja
eru vandamál sem geta verið erfið viðfangs fyrir
einstaka heildsölnr, en ættu að vera yfirstíganleg í
góðri samvinnu við viðkomandi yfirvöld.
Eg vildi að lokum geta þess, að mér hefur skilizt,
að í aðild að EFTA fælist ekki almenn heimild til
handa útlendingum til atvinnurekstrar í öðrum
meðlimaríkjum. Þess vegna er hér ekki tilefni til
þess, að ég geri grein fyrir viðhorfum mínum til
slíkrar heimildar. En það var í trausti þess, að ég
lýsti því yfir áðan, að væntanleg áhrif á hagvöxt
ættu að ráða úrslitum um viðhorf okkur til aðildar.
Frá þvi að þetta erindi var flutt hefur verið upp-
lýst, að aðildarríki EFTA hafi komið sér saman um,
að veita gagnkvæma heimild til atvinnurekstrar í
aðildarríkjunum að því er tekur til umboðssölu og
stórsölu.
Af ástæðum, sem fyrr greinir, er hér fyrir hendi
rekstrarfjárskortur og húsnæðisvandræði, sem þurfa
lagfæringar við áður en hægt yrði að taka upp
samkeppni við fjársterk erlend fyrirtæki. Heild-
verzlunin mun því þurfa á talsverðum aðlögunar-
tíma að halda. Að lokum vil ég geta þess, að hugs-
anleg aðild íslands að EFTA hefur ekki verið rædd
á fundum Stórkaupmannafélagsins, og það, sem hér
hefur verið sagt, eru persónulegar skoðanir.
FRJÁLS VERZLUN
21