Frjáls verslun - 01.06.1966, Side 24
Það gerðist í smábarmiskólanum. Lítill drengur
rétti upp höndina, og spurði kennslukonuna: „Hvað
er jörðin þung?“
Kennslukonan hafði ekki svar á reiðum höndum,
en kvaðst mundu koma með það daginn eftir.
Að kennslu lokinni iiafði hún mikið fvrii því, að
fletta í bókum í bókasafninu, og fann þar að lokum
svar við spurningunni.
Daginn eftir sagði hún við bekkinn: „Jæja, veit
nokkur hér í dag hvað jörðin er þung?“
Er enginn svaraði, kom kennslukonan með svar-
ið, sigri hrósandi. Að andartaki liðnu rétti sami
drengurinn upp hendina, og spurði: „Er það með
fólki eða án?“
★
— Mamma heyrði hávaða í svefnherberginu í
nótt. Hún stökk fram úr rúminu, og sá að tveir
karlmannsfætur stóðu undan því.
— Var það innbrots])jófur?
— Nei, pabbi, hann heyrði hávaðann líka!
Hjónavígsla er, þegar maðurinn missir alla stjórn
á sér.
★
Ekkja, sem giftist ekkjumanni, var að því spurð
af vinkonu ,hvernig hjónabandið gengi.
— Talar maðurinn þinn nokkurn tíma um fyrri
konu sína, spurði vinkonan.
— Hann gerði það um tíma, en ég læknaði hann
af því.
— Hvernig?
— Eg fór að tala um næsta eiginmann, sem ég
mundi eignast!
24
KRJÁLS VERZLUN