Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1969, Blaðsíða 18

Frjáls verslun - 01.02.1969, Blaðsíða 18
16 FRJAL5 VERZLUN Það er ekki nýmæli, að Ríkis- útvarpið og starfsmenn þess sæti gagnrýni fyrir störf sín. Þau eru jafnan undir smásjá allra lands- manna úr öllum flokkum, og hinna ólíku hagsmunahópa, sem vilja öðru fremur, að þeirra hlut- ur sé mestur og að almenningur verði látinn vita, að einmitt þeir hafi á réttu að standa og geri því kröfu til fyllsta skilnings á eigin hag og sjónarmiðum. Útvarpið hefur á undanförnum áratugum orðið að standa af sér þess konar áhlaup úr öllum átt- um. Þeir, sem fyrir það hafa unn- ið, og þá sér í lagi fréttamenn, hafa verið sakaðir um hægri- eða vinstri villu, hollustu við eitt stór- fyrirtækið og ekki annað, vináttu við þennan einstaklinginn, sem fengið hefur tækifæri til að tjá sig á öldum ljósvakans, en ekki hinn, sem varð að iáta sér nægja að stinga niður penna og biðja blaðið sitt fyrir boðskapinn. Ríkisútvarpinu hefur verið ætl- MARKÚS ÖRN ANTONSSON, fréttamaíur skrifar: ÞANKABROT UM FRÉTTIR SJÓNVARPS m ÚTVARPS að að „forðast hlutsamar umsagn- ir“ í fréttaflutningi sem og ann- arri dagskrá. Er svo ráð fyrir gert í reglugerð um fréttaflutning Rík- isútvarpsins, 24 ára gamalli. Á síðari árum hefur þróun út- varpsmálanna orðið sú, að Rík- isútvarpið hefur í síauknum mæli gerzt vettvangur óhkra sjónarmiða og mönnum er þar frjáist að tjá einkaskoðanir sínar í mörgum málum. Núver- andi formaður útvarpsráðs hefur lýst þessu sem breytingu til hins betra, því að nú sé útvarpið ekki hlutlaust heldur óhlutdrægt. Hlut- leysi útvarpsins á fyrstu tveim áratugum þess er fyrirbæri, sem ég kynntist ekki af eigin raun. Hins vegar má fara nokkru nærri um nauðsyn þess á tímum, er persónulegar illdeilur ogærumeið- ingar forystumanna í þjóðmálum voru helzta skemmtan almenn- ings í skammdegi millistríðs- og kreppuáranna. Við slíkar aðstæð- ur er eðlilegt, að hugmyndir um hlutleysi jafn áhrifamikils tækis fái byr undir báða vængi — eink- anlega ef það liggur ljóst fyrir, að gerðar hafi verið tilraunir til að misnota það í áróðursskyni. Hins vegar hljóta verulegar tak- markanirá tjáningafrelsi i útvarpi að verða stofnuninni sem slíkri til trafala og gera henni illkleift að gegna hlutverki sínu við birtingu frétta og í almennri uppfræðslu annari. Á fyrri tímum hefur þögn- in því sennilega oft verið helzta afdrep þeirra útvarpsmanna. Nú er sjónvarp komið til skjal- anna. Merkum tímamótum í sögu fjölmiðlunar á íslandi var náð fyrr en nokkur hafði gert ráð fyr- ir og útbreiðsla þess á óhagstæð- um tímum hefur verið ótrúieg. í dagskrármálum varð þróunin of ör, bví að fjölgun útsendingardaga var ákveðin þrátt fyrir þröngan fjárhag og fámennt starfslið, sem hefur verið ofhlaðið verkefnum við frumstæðustu skilyrði til að halda uppi sex daga útsendingu nú síðastliðið ár. Þessi þensla hef- ur verið mjög óeðlileg. Með sex daga útsendingu hefur þó sjónvarpið raunverulega gerzt sjálfstæður fréttamiðlari og er svo að heyra á þeim, sem látið hafa álit sitt í ljós opinberlega, að þessi nýi þáttur í öflun frétta og birtingu þeirra á íslandi hafi almennt mælzt vel fyrir. En svo sem búast mátti við, hafa fréttamenn sjónvarps hlotiðámæli
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.