Frjáls verslun - 01.01.1970, Qupperneq 9
FRJÁLS VERZLUN
9.
VERÐLAGSMÁL:
FRJÁLS VERÐLAGSMYNDUN
— er megininntak stjórnarfrumvarps, sem liggur fyrir Alþingi
Nú liggur fyrir Alþingi stjórn-
arfrumvarp um verðgæzlu og sam-
keppnishömlur. Nefnd, skipuð 21
fulltrúa ríkisvaldsins, hagsmuna-
samtaka og stjórnmálaflokkanna,
vann að samningu frumvarpsins.
Nefndin klofnaði, og 15 nefndar-
manna stóðu að frumvarpinu, eins
og það liggur nú fyrir, 5 héldu
fram annarri stefnu, en einn var
erlendis er nefndarmenn tóku
endanlega afstöðu. Megininntak
frumvarpsins er það, að verðlags-
myndun verði frjáls. En ýmsir
varnaglar eru slegnir. Eru ákvæði
mjög áþekk verðlagsákvæðum í
nágrannalöndunum.
Það var í febrúar 1967, að rík-
isstjórnin tók ákvörðun um skip-
un nefndar til að fjalla um skip-
an verðlagsmála. Viðskiptamála-
ráðherra skipaði nefndina, 18
nefndarmenn skv. tilnefningu og
3 án tilnefningar. Formaður var
skipaður Þórhallur Ásgeirsson
ráðunéytisstjóri. Nefndin skipaði
5 manna undirnefnd. Þá fékk hún
til aðstoðar skrifstofustjóra
danska einokunareftirlitsins, Ad-
olf Sonne hagfræðing, sem kynnti
mjög ítarlega löggjöf um verð-
lagsmál í Danmörku, Svíþjóð og
Noregi, og framkvæmd hennar.
Nefndarstöi-funum miðaði vel
1967, en vegna sérstakra að-
stæðna í efnahagsmálum varð svo
hlé á þeim frá okt. 1967 til júní
1968, en þeim lauk í október sl.
Eins og fyrr segir, skrifuðu 15
nefndarmenn undir nefndarálitið,
eins og það liggur nú fyrir í frum-
varpi til laga. Þó gerðu sumir
þeirra fyrirvara um einstök atriði.
Þessir 15 menningar voru fulltrú-
ar ríkisvaldsins, atvinnuveganna,
neytendasamtakanna, kvenfélaga
sambandsins og Sjálfstæðisflokks-
ins. 5 menningarnir, sem skiluðu
séráliti, voru fulltrúar ASÍ,
BSRB, Alþýðubandalagsins og
Alþýðuflokksins, svo og verðlags-
stjóri. Einmenningurinn, sem ekki
tók þátt í lokaafgreiðslu, var full-
trúi Framsóknarflokksins.
HVAÐ GERIST Á ALÞINGI?
Þrátt fyrir afstöðu fulltrúa Al-
þýðuflokksins í stóru nefndinni,
varð ríkisstjórnin sammála um að
leggja meirihlutaálitið fram, sem
lagafrumvarp. Frumvarpið felur í
sér grundvallarbreytingu og má
líta á það, sem einn af óhjá-
kvæmilegum fylginautum inn-
göngunnar í EFTA, þótt frjáls
verðlagsmyndun hafi að vísu
hvort eð er verið knýjandi nauð-
syn.
Nú er málið í þingnefnd, en
væntanlegt þaðan eftir þinghlé,
eða í byrjun marz. Frumvarpið er
flutt af ríkisstjórninni. Stuðning
þingmanna Sjálfstæðisflokksins
má telja vísan. Hins vegar er
nokkuð á reiki, hvort þingmenn
Alþýðuflokksins hafa samstöðu.
Þó er talið að svo sé, a. m. k. að
mestu. Allt er á huldu um afstöðu
Framsóknarmanna. Fulltrúi
flokksins í stóru nefndinni tók
aldrei opinberlega afstöðu, en full-
trúi SÍS, Erlendur Einarsson for-
stjóri, stóð að meirihlutaálitinu án
fyrirvara. Aftur á móti tók for-
maður flokksins málinu þunglega,
er það var lagt fram í þingdeild.
Er því trúlegt, að andstöðu gæti í
þingliði Framsóknarflokksins, en
hins vegar vitað, að t. d. Eysteinn
Jónsson muni eiga erfitt með ann-
að en ljá málinu lið, sem stjórn-
armaður í SÍS, en stjórn SÍS
studdi afstöðu Erlends með meiri-
hlutaálitinu. Þá má geta þess, að
fulltrúi Stéttarsambands bænda
var einn af 15 menningunum.
Þegar á allt er litið, virðist trú-
legt, að frumvarpið um verð-
gæzlu og samkeppnishömlur njóti
meirihlutafyigis á Alþingi, og að
frjáls verðlagsmyndun í megin-
atriðum verði því fljótlega að
veruleika.
10 ára reynsla okkar í viðgerðum á hemlum bifreiSa
sem sérgrein, meS fullkomnustu fáanlegum tækjum,
tryggir yður, bifreiðaeigendum, örugga þjónustu.
STILLING H.F.
Skeifan 11
Sími 31340