Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1970, Blaðsíða 35

Frjáls verslun - 01.01.1970, Blaðsíða 35
FRJÁLS VERZLUN 33 nfL bifreiðum og frjáls u tvö mikilvæg atriði varahlutaverð hafði sömu- leiðis tvöfaldazt, álagning undir ströngum ákvæðum og gamlar birgðir seldar á ,gömlu verði, svo kippt var uótunum undan birgða- haldi. Það lætur nærri, að fólksbifreiðar hafi kostað orðið góð árslaun og þar yfir, vöruflutningabifreiðar álíka og ný fjögurra her- bergja íbúð og fólksflutn- ingabifreiðar eins og myndarlegt einbýlishús á völdum stað. Þar að auki voru varahlutabirgðir orðn- ar af svo skornum skaminti, að oft varð að bíða eftir varahlutum erlendis frá og greiða hátt flutningsgjald. Og auðvitað nær það engri átt, að flytja inn bifreiðar í pörtum í stórum stíl og setja þær saman hér við ó- fullkomnar aðstæður, eins og' gert var á haftaárunum. Innflutningur og sala bifreiða drógst mjög sam- an þegar eftir gengisfell- ingarnar og komst niður í um 800 bifreiðar í fyrra, en eðlileg endurnýjun og viðbót er talin vera nærri 4000 bifreiðar á ári. Á sama tíma jókst mjög öng- þveitið í viðhaldi þeirra bifreiða, sem til eru, og kostnaðurinn jókst jafn- framt. Breytingarnar. Bifreiðainnflytjendur unnu að sjálfsögðu að þvi að kynna ásland þessara mála fyrir stjórnvöldum og bera fram tillögur og óskir um úrbætur. Ekki er vafi á, að skilningur var í meg- inatriðum fyrir hendi, þótt aðstæður hindruðu lengi vel æskileg viðbrögð. Vit- anlega má deila um það, hvort nægilega hafi verið að unnið af háifu aðila, og skal ekki út í það farið hér. En fyrsta skrefið til bóta var svo stigið í vetur, þeg- ar álagning á varahluti var gefin frjáls. Við höfðum látið gera athugun á af- komu 9 varahlutaverzlana 1967 og reyndist taprekstur hjá þeim öllum, mismun- andi mikill. Þetta, ásamt ýmsum öðrum upplýsing- um, var lagt fyrir verð- lagsnefnd. Og þegar aðal- fundur Félags ísl. bifreiða- eigenda, neytenda í þessu tilfelli, óskaði einnig ein- dregið eftir því, að álagn- ing á varahluti yrði gefin frjáls, sá verðlagsnefnd sér ekki annað fært en verða við þessum óskum, þótt það gildi nú fyrst um sinn að- eins í 6 mánuði. Þetta mun hafa í för með sér ó- verulega hækkun á vara- hlutaverði, en jafnframt falla niður sérverð á sér- pöntunum og þjónustan batnar. Þegar til lengdar lætur, kemur það svo enn fremur til góða, að unnt verður að fá magnafslætti erlendis og að aukin sam- keppni knýr á um fullnægj- andi birgðahald og hag'- kvæmt söluverð. Annað skrefið er svo það, sem nú er verið að stíga með niðurfellingu leyfisgjaldanna. Það lækk- ar verulega verð á fólks- bifreiðum og minni vöru- flutningabifreiðum, nokk- uð á jeppum, en því miður ekkert á stærri vöru- og fólksflutningabifreiðum, er ekki hafa verið innheimt af leyfisgjöld. Þegar 3 V2 % hækkun söluskattsins hef- ur verið vegin með, lækk- ar verð fyrst nefndu bif- reiðanna um nálægt 15%, jeppanna örlítið, en verð stóru bifreiðanna hækkar, sem nemur hækkun sölu- skattsins. Leigubifreiðar- stjórar munu að öllum lík- indum fá tollaívilnun í stað lægri leyfisgjalda áður. Mestur vandi er eftir á höndum þcirra, sem reka stórar vöru- og fólksflutn- ingabifreiðar, enda hafa orðið einhliða hækkanir á verði þeirra bifreiða, og nema þær nú yfir 100% frá 1967. Þessir aðilar hafa nú lagt fram rökstudda beiðni um lækkun tolla af stóru bifreiðunum, og verð- ur og vænta þess, að þjóð- hagslegt mat ráði niður- stöðu málsins, sem raunar þarf naumast að efa. Niðurfelling leyfisgjald- anna gengur i gildi 1. marz næstk., og er það því lagt á verð þeirra bifreiða, sem seldar verða þangað til. Hins vegar verður endur- greiddur munurinn á verði þeirra nú og eftir 1. marz, þegar niðurfellingin geng- ur í gildi, og' er það vissu- lega líklegt til að koma innflutningi bifreiða fyrr af stað aftur en ella. Þessar ráðstafanir, sem gerðar hafa verið, lofa góðu út af fyrir sig, enda þótt bifreiðaverð sé enn hátt hér á landi og mildu hærra en í nágrannalönd- unum. Þær sýna skilning á þýðingu bifreiðanna fyrir okkur Islendinga, og á sá skilningur vonandi eftir að koma betur í Ijós á næst- unni og framvegis. Ég lít því björtum augum á það, að innflutningur bifreiða komist á ný í eðlilegt horf og nauðsynleg hreyfing komist aftur á bifreiðaeign lndsmanna. Framtíðin. Það sem mestu máli skiptir nú framundan, er að lækkað verði með ein- hverjum hætti verð bifreið- anna, sem eru einhver milc- ilvægustu þjónustu- og at- vinnutæki okkar íslend- inga og ómissandi hlekkir í mörgum greinum. Á inn- flutning þeirra er nú lagð- ur 40% tollur, en aðeins 25% tollur á innflutning þungavinnuvéla, sem eru þó í stórum dráttum svip- aðs eðlis, enda er farið eins með varahluti til beggja. Lækkun tollsins í 25% myndi strax hafa verulega Framh. á bls. 64.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.