Frjáls verslun - 01.01.1970, Blaðsíða 23
FRJÁLS VERZLUtf
23
ERLEND FYRIRTÆKI:
BALLOGRAF BIC A/B
Ballograf A/B var stofnað árið
1947 í Gautaborg, og var þar með
fyrsta kúlupennaverksmiðja í
Evrópu. Framleiðslan var lítil í
byrjun, tveir starfsmenn unnu að
framleiðslunni í bílskúr. Keppi-
nautar um markaðinn spruttu upp
eins og gorkúlur á haug, og um
það bil 3 árum seinna fyrirfundust
í Svíþjóð einni ekki færri en tutt-
ugu kúlupennaverksmiðjur.
Þegar um nýja framleiðslu er
að ræða, þá þarf að sigrast á byrj-
unarörðugleikum, svo sem leka í
fyllingum, en örðugasti hjallinn
var að finna ráð við þeim ágalla
á blekinu, að það dofnaði eða jafn-
vel hvarf með tímanum og svo
hinu, að pennanum þurfti aðhalda
beint upp á endann, til þess að
hægt væri að skrifa með honum.
Ballograf sigraðist á þessum örð-
ugleikum, en þetta hafði það í
för með sér, að nú urðu keppi-
nautarnir ósamkeppnisfærir og
neyddust til að loka fyrirtækjum
sínum. Ballograf er nú í dag eina
kúlupennaverksmiðjan í Svíþjóð,
og má þakka það þeirri reglu, sem
ætíð hefur verið fylgt, „gæði um-
fram magn“.
Ballograf hefur unnið braut-
ryðjendastarf, ekki aðeins með
nýja blekinu, heldur einnig með
jákvæðri þróun pennans. Fylling-
ar-oddinum var breytt og í hann
sett kúla, sem snérist, þegar skrif-
í þessum rennibekkjum eru stál-
oddarnir framleiddir, með ná-
kvæmni, sem er 1/5000 úr mm.
að var, og gerir það að verkum,
að nú er hægt að skrifa með því
að halda pennanum eins og hverj-
um og einum finnst þægilegast.
Annað, sem Ballograf hefur haft
frumkvæðið að í Evrópu, er:
Fjaðrandi mechanismi í fylling-
una (ýtir henni út og hleypir
inn), stærri blekfylling, 6 blek-
rásir í fyllingarnar, fylling sér-
staklega gerð fyrir undirskriftir.
Það er engin tilviljun, að Ballo-
graf er nú meðal fremstu kúlu-
pennaframleiðenda í heiminum.
Söluprogram fyrirtækisins er
árangur, sem fengizt hefur af
reynzlu við framleiðslu og sölu á
yfir 300 milljónum kúlupenna og
fyllinga. Smám saman var unnin
markaðurinn í Evrópu, og eftir að
framleiðslumagnið hafði verið
stóraukið, opnaðist möguleiki á
markaði um víða veröld. Dagleg
framleiðsla er nú 125.000 pennar
og fyllingar. Af þessu er 70%
flutt út til um 70 landa.
Vegna hins háa vinnuaflskostn-
aðar í Svíþjóð, þá var það aug-
ljóst, að mikil hagræðing á rekstr-
inum var nauðsynleg. Með gamla
fyrirkomulaginu á framleiðslunni
hefði starfsmannafjöldinn fljótt
kaffært fyrirtækið, en með hag-
ræðingu tókst að ná því marki,
að nú er tiltölulega fámennt
starfslið, og starfar það aðallega
við eftirlit og samsetningu.
Nákvæmnisvélar, sem búnar
hafa verið til af starfsmönnum
Ballograf, eru notaðar við fram-
leiðsluna. Til dæmis um ná-
kvæmnina er hægt að nefna, að
fyllingarnar eru með hlaupi, sem
er aðeins 1/5000 úr mm, það er
að segja, fyllingarnar eru fram-
leiddar með sömu nákvæmni og
Svissnesku úrin.
„Denascon" mechanisminn i
Epoca-pennanum er búinn til úr
gríðarsterku efni. Tilraunir hafa
gefið til kynna, að endingin gæti
varað í 200 ár með daglegri notk-
un 40 sinnum á dag.
Fyrir nokkrum árum síðan lauk
hópur sænskra vísindamanna
rannsóknum á skrift. Niðurstöð-
urnar sýndu, að þyngd og gild-
leiki pennans höfðu miklu meiri
áhrif á skriftina en menn hafði
órað fyrir. Lítil þyngd pennans
orsakaði harðari skrift og meira
átak á vöðvana. Mjóir pennar
höfðu svipuð áhrif. Ballograf fyr-
irtækið hafði komizt að þessum
sömu niðurstöðum nokkru áður,
en þessar rannsóknir staðfestu
niðurstöðurnar, svo ekki varð um
villzt. Það er að segja, að skriftar-
krampi og þreyta skólabarna og
unglinga orsökuðust af léttum og
mjóum skriffærum. Framfarirnar
létu ekki á sér standa í nýrri gerð
penna „Ballograf Epoca“.
Bic pennarnir eru einnig seldir
af Ballograf Bic A/B.
Kúlan fremst í fyllingunni er
einn mikilvægasti hluti pennans,
og sú kúla, sem Bic er búin til úr,
er sams konar efni og notað er í
handsprengjur til eyðileggingar á
skriðdrekum, „Wolframkarbid“.
Það er í rauninni grátlegt að
hugsa til þess, að kúlunni skuli
hent, eftir að blekið er þorrið úr
fyllingunni, því að kúlan gæti
enzt í 200 ár. Þegar kúlan er búin
til, er hún nákvæmlega skoðuð og
slípuð, til þess að hægt sé að
tryggja jöfn gæði pennans. Kúl-
urnar eru slípaðar í sérstökum
slípivélum og tekur slík slípun
margar klukkustundir, en fjöldi
kúlna er slípaður í einu.
Allar Baliograf-fyllingar eru at-
liugaðar og reyndar.