Frjáls verslun - 01.01.1970, Qupperneq 46
46
FRJALS VERZLUN
félag, sem er í uppbyggingu, getur
ekki samtímis gert kröfur til þess,
að hámarksfjárfesting eigi sér
stað í neyzluþættinum eins og t.
d. íbúðarhúsnæði, bifreiðum, hús-
gögnum o. þ. h. og jafnframt sé
nægilegt fjármagn til að fjárfesta
í framleiðslutækjum, fræðslu- og
tryggingakerfi o. s. frv. Hér verð-
ur að vera skynsamlegt hlutfall
á milli neyzlu og sparnaðar, einka-
neyzlu og samneyzlu, opinberrar
fjárfestingar og einkafjárfesting-
ar. Ráðstöfunarfjármagn þjóðar-
innar á hverjum tíma. á að setja
henni skynsamleg takmörk.
Það er einkennileg tilviljun, að
á næsta leiti eru líklegast þátta-
skil í sögu íslenzku þjóðarinnar í
tvenns konar skilningi.
f fyrsta lagi: Að með aðild
að Fríverzlunarsamtökum Evrópu,
sem þýðir útvíkkun þeirrar efna-
hagsheildar, sem þjóðin verð-
ur að starfa í um ófyrirsjá-
anlega framtíð, verður að stefna
að fækkun og stækkun fyrir-
tækja, sem geta bctur stað-
izt samkeppnina á heimsmörkuð-
unum. Það þýðir fækkun eignar-
aðila í atvinnurekstri. nema ís-
lenzkum skattalögum verði breytt
á þann veg, að eftirsóknarvert
verði fyrir einstaklinga að eiga
hlut í atvinnurekstri, svipað og á
sér stað í Bandaríkjunum. Þá er
hugsanlegt, að fólkið myndi vilja
setja sparifé sitt í atvinnurekstur
frekar en íbúðir, eins og verið
hefur á undanförnum árum. Hvað
sem því líður, er fyrirsjáanlegt,
að framleiðsluheildirnar í atvinnu-
rekstri stækka og þær þarfnast
mikils fjármagns. Hugsjón hins
takmarkaða og einstaklings-
bundna einkaframtaks hefur
runnið sitt skeið. Að vísu verða
starfandi hundruð smáfyrirtækja,
en í framtíðinni verður lögð meg-
in áherzla á að byggja upp stór-
fyrirtæki eða samsteypur með
hundruðum ef ekki þúsundum
starfsmanna. Eðli aukinnar verka-
skiptingar þjóðanna og harðnandi
samkeppni gerir slíkt óumflýjan-
legt.
Er þá komið að öðru atriðinu:
— Fjármögnun þessarar miklu um-
breytingar.
Með tilkomu lífeyrissjóðanna,
sem nú er verið að ganga frá,
myndast ákveðinn og hugsanleg-
ur fjármögnunargrundvöllur fyr-
ir stórfyrirtæki framtíðarinnar, ef
vilji er fyrir hendi af hálfu þeirra,
sem ráða yfir sjóðunum. Auðvit-
að þýðir það ekki, að minni fyrir-
tæki eigi að vera afskipt gagn-
vart fjármögnunarmöguleikum úr
þessum sjóðum. Fyrirsjáanlegt er,
að eftir örfá ár munu árlegar
tekjur lífeyrissjóðanna og ráð-
stöfunarfé verða mun meira en
árleg aukning í spariinnlánum
banka og sparisjóða við óbreyttar
aðstæður. Greiðslubyrði sjóðanna
verður tiltölulega lítil fyrstu ára-
tugina, og takist að halda verð-
bólgunni niðri, verður þarna fyr-
ir hendi gífurlega mikið ráðstöf-
unarfé.
Erfitt er á þessu stigi að gera
nákvæma grein fyrir, hversu mik-
il fjármagnsmyndunin verður. En
gróft reiknað má gera ráð fyrir,
að innan fárra ára verði árlegt
ráðstöfunarfé lífeyrissjóðanna á
annað þúsund milljóna króna.
Þegar haft er í huga, að áætlað
er, að sparifé 1 viðskiptabönkum
og sparisjóðum muni aukast um
rúmlega 1000 milljónir króna í
ár, er unnt að gera sér í hugar-
lund, hvaða áhrif fyrirhugaðir og
núverandi lífeyrissjóðir muni
hafa á fjármagnsstrauminn í ís-
lenzka peningakerfinu.
Notkun þessa fjármagns get-
ur ráðið miklu um framtíðarþjóð-
félagsskipan á íslandi. Það hvort
við hneigjumst til sósíalisma í
gegnum „sentralíseraða“ fjár-
magnsnotkun undir stjórn vinstri
sinnaðs ríkisvalds og stofnana
þess, eða hvort við hneigjumst í
átt til aukins frjálsræðis, svipað
og á sér stað í Bandarikjunum,
byggist á því að samningsaðilar
vinnumarkaðsins hafi sem frjáls-
ast ákvörðunarvald yfir rekstri,
stjórn og ákvörðunum um ávöxt-
un á fjármagni lífeyrissjóðanna.
Þurfa þeir vissulega að starfa í
samræmi við ríkjandi efnahags-
stefnu á hverjum tíma. í vissum
skilningi skapa sjóðirnir ný tæki-
færi fyrir þátttöku fjöldans í at-
vinnuuppbyggingu þjóðarinnar,
ef ráðstöfunarfjármagni þeirra er
beint til atvinnufyrirtækjanna í
margbreytilegu formi. Stofnun
framkvæmdafélaga, almennings-
hlutafclaga og fyrirheit um heil-
brigðari skattalöggjöf gagnvart
atvinnurekstrinum, vekja vonir
um nýjan tíma, en til þess, að þær
megi rætast, þarf djörfung og
kjark til að fara inn á nýjar
brautir í fjármálum og atvinnu-
málum þjóðarinnar.
LJÓSASKILTI Smíðum plastljósaskilti í ýmsum stærðum. Aukið söluna með varanlegri auglýs- ingu, smíðaðri með tilliti til íslenzks veðurfars. Tillögur og tilboð án endur- gjalds. PLASTGLER Glærar og litaðar acrylplastplötur, niðursagaðar og unnar eí'tir vild til margvíslegrar notkunar. T. d.: i glugga, hurðir — bílrúður — milliveggi, undir skrifborðsstóla og margt fleira. Allt að 17 sinnum styrkleiki venjulegs glers. önnumst ýmis konar sérsmíði úr plastgleri. — Hagstætt verð.
GEISLAPLAST VIÐ MIKLATORG SÍMI 21090