Frjáls verslun - 01.01.1970, Síða 51
FRJALS VERZLUM
51
FERÐAMÁL:
HÓTEL BORG 40 ÁRA
— hýsir 15 þúsund manns á ári
HÓTEL BORG átti fertugs af-
mæli hinn 18. febrúar sl. Opnun
þess var að mörgu leyti merkis
atburður í sögu þjónustumála ís-
lands, því að þetta var fyrsta 1.
flokks hótelið, sem tók til starfa
í Reykjavík.
Árið 1930 var merkisár í sögu
þjóðarinnar. Eitt þúsund ár voru
liðin frá stofnun Alþingis, og því
voru framundan mikil hátíðahöld
og von á mörgum erlendum gest-
um í því tilefni; meiri gestakoma
en hér hafði áður þekkzt. Við
þetta sköpuðust ýmis vandamál,
því að á þessum tíma vorum við
lítt undir það búin að taka á móti
og hýsa fjölda erlendra fyrir-
manna.
Tilfinnanlegur skortur var á
góðu gistihúsi, og hin brýnasta
nauðsyn að eitt slíkt yi'ði reist.
En eins og Aron Guðbrandsson,
núverandi stjórnarformaður Hó-
tel Borgar hf. komst að orði á af-
mælisdegi hótelsins: „Enginn var
sá aðili á íslandi, sem taldi sig
þess umkominn að standa undir
slíkri stórframkvæmd fjárhags-
lega. Þá varð það til bjargar
sóma lands og þjóðar, að íslend-
ingurinn Jóhannes Jósefsson,
glímukappi, sem dvalið hafði
meðal framandi þjóða um árabil,
getið sér frægð og frama og nokk-
urs fjárs, kom heim og leysti þann
vanda, þar sem aðrir voru frá-
gengnir.11
Jóhannes lét byggja Hótel
Borg, og vafalaust má telja
þetta framtak hið mesta, sem ráð-
izt hafði verið í af einstaklingi
hér á landi. Guðjón Samúelsson,
húsameistari rikisins, gerði aðal-
teikninguna að húsinu. Hótel
Borg mun hafa kostað með öllu
innbúi 1930 kr. 1.3 milljónir, sem
var mikil fjárhæð á þeim tíma,
eins og sést af því að þá kostaði
miðdegisverður á hótelinu kr.
2.50.
Jóhannes seldi Hótel Borg sam-
nefndu hlutafélagi árið 1960, sem
rekið hefur hótelið upp frá því og
átti því 10 ára starfsafmæli um
sömu mundir og hótelið sjálft
varð 40 ára.
— Núverandi hótelstjóri er Pét-
ur Daníelsson, en hann var einn
af 8 fyrstu þjónum hótelsins.
,,Á síðasta ári gistu 15 þúsund
manns hótelið," sagði Pétur í
stuttu samtali við FV. í tilefni af-
mælisins. „Við höfum yfir að
ráða 46 herbergjum með sam-
tals 72 rúmum, og veitingasalir
rúma 350 manns. Miklar endur-
bætur hafa verið gerðar á öllu
hótelinu — bæði inni og úti —
frá því að við tókum við því fyrir
10 árum, enda þarf stöðugt að
vera að endurnýja hótelbygging-
ar til að fullnægja kröfum á
hverjum tíma.“
Um nýtingu Hótel Borgar sagði
Pétur: „Nýtingin hér hefur jafn-
an verið nokkuð góð. Á sumrin
eða yfir fjögurra mánaða tímabii
er hvert rúm skipað, en minna
hefur verið að gera yfir vetrar-
mánuðina, sérstaklega nú eftir að
hótelunum tók að fjölga.“ Hann
segist vera bjartsýnn á að enn sé
hægt að auka ferðamannastraum-
inn til landsins yfir sumarið, en
RAZN0IMP0RT, M0SKVA
RUSSNESKI HJOLBARÐINN ENDIST
Hafa enzt 70.000 km akstui* samkvæmt
vottorðl atvinnubllsljóra
Faest h]A Hestum hjólbaröasölum A landínu
Hvergi laegra verö ^
SflVII 1-7373
TRADING
CO.
HF.