Frjáls verslun - 01.04.1972, Page 73
Bílar:
Þróun bílaframleiðslu
í heiminum
Evrópulönd fram úr Bandaríkjunum
Þegar við hugsum um bíla-
framleiðsluna í heiminum, kem-
ur okkur í hug, að Bandaríkja-
menn hafi verið alvaldir í þró-
uninni, en myndin verður önn-
ur, ef við athugum hlutfallslega
skiptingu ársframleiðslunnar og
sögulegar staðreyndir. Bíllinn
fæddist í Austurríki árið 1871
og endurfæddist í Þýzkalandi
1885. Hann ólst upp í Frakk-
landi. Fram til aldamóta var
Evrópa allsráðandi í þróun bif-
reiðarinnar, en upp úr 1900
fóru Bandaríkjamenn í fullri
alvöru að fá áhuga á möguleik-
um bifreiða, og síðan tóku þeir
forystu.
Bandaríkjamenn fengu veru-
legt forskot eftir fyrri heims-
styrjöld, meðan Evrópa var í
sárum eftir stríðið. Evrópu-
menn náðu sér aftur á strik
hlutfallslega upp úr 1930, þeg-
ar kreppan dundi yfir Banda-
ríkin, og fljótt eftir seinni
heimsstyrjöldina sóttu Evrópu-
menn í sig veðrið, þótt bíla-
framleiðsla í þágu almennings
hefði að heita mátt ekki verið
nein á styrjaldarárunum. Nú
hafa Evrópumenn farið fram úr
Bandaríkjamönnum í bílafram-
leiðslu, og „önnur ríki heims“,
sem hér eru tekin saman í
þriðja flokkinn, hafa náð
Bandaríkjunum.
Athyglisvert er að kanna
ástandið í bílaframleiðslu á ár-
um heimsstyrjaldanna tveggja.
í ríkjum styrjaldaraðila var bif-
reiðaframleiðslunni í stríðsbyrj-
un breytt í hergagnafram-
leiðslu. í Bandaríkjunum hélt
framleiðsla almennra bifreiða
óhindrað áfram, þar til þau
blönduðu sér í styrjaldirnar,
það er að segja árin 1917 og
1942. í Evrópu héldu einungis
Bretland og Ítalía áfram að
framleiða bifreiðar alla fyrri
heimsstyrjöld.
JAPAN STÍGUR FRAM.
„Önnur ríki heims“ átti fram
til 1946 nærri eingöngu við
Kanada, en þá haslar Japan sér
völl, og síðar komu Ástralía,
Indland og Mexíkó 1950, Suð-
ur-Ameríka 1957 og Suður-
Afríka 1958. Bretland hafði for-
ystu í Evrópu fram til 1957, en
þá tók Vestur-Þýzkaland foryst-
una, sem það hefur haldið síð-
an, en næst því koma nú Frakk-
land, Bretland og Ítalía. í Sví-
þjóð hafði Scania-Vabis fram-
leitt nokkur hundruð bifreiðar
á ári frá 1914, og 1927 tók Sví-
þjóð stökk frá 410 bifreiðum í
1250. Þá var framleiddur fyrsti
VolvobíUinn, „Jakob“, og voru
mikið forskot ennþá í saman-
lagðri bílaframleiðslu frá byrj-
un. Vegna þess, að Evrópa og
önnur lönd heims framleiða nú
árlega töluvert fleiri bifreiðar
en Bandaríkin, væri áhugavert
að reikna, hvenær þau mundu
ná þeim í samanlagðri fram-
leiðslu frá upphafi, ef þannig
væri haldið áfram. En það yrði
of mikið verkefni fyrir litla
grein.
Og hvert hafa allir þessir
bílar farið? Hvaða vegi hafa
þeir ekið? Við verðum að láta
okkur nægja að taka tölur um
skráða bíla í einstökum löndum
í ársbyrjun 1970:
Hlutdeild í bílaframleiðslu heimsins:
framleiddir 300 slíkir fyrsta
árið.
HELMINGUR í USA.
Hve margar bifreiðar hafa
verið framleiddar í heiminum
frá byrjun?
Bandaríkin . . 279 millj. 56%
Evrópa ....... 159 — 32%
Önnur ......... 62 — 12%
Samtals 500 millj. 100%
Þessar tölur ná fram til 1970,
og sýna, að Bandaríkin hafa
Bandaríkin .. 108 millj. 52%
Evrópa ........ 67 — 32%
Önnur ......... 33 — 16%
Samtals 208 millj. 100%
Eins og sést af þessu, hafa
Bandaríkin einnig á þessu sviði
forystu i ríkum mæli, enda
kaupa þau mikið af bifreiðum
frá öðrum löndum. Virðist ekki
líklegt, að Bandaríkin missi for-
ystuna sem sá heimshluti, þar
Framh. á bls. 78.
FV 4 1972
73