Frjáls verslun - 01.11.1973, Side 5
FRJÁLS
VERZLUN
11. TBL. 1973
ísland
í nærri 25 ár hafa íslendingar verið aðilar að Norð-
ur-Atlantshafsbandalaginu. Á grundvelli sáttmála
þess hafa íslendingar og Bandaríkjamenn haft með
sér samning um varnir landsins. En störf Atlants-
hafsbandalagsins lúta að ýmsu öðru en varnarsam-
vinnu. Á vegum þess starfa nokkrar deildir, er fjalla
um vandamál nútímaþjóðfélags eins og efnahagsmál
og umhverfismál. Með þátttöku sinni í bandalaginu
hafa íslendingar átt þess kost að fylgjast náið með
þróun þessara mála, en hafa hins vegar lítið sem
ekkert notfært sér tækifærin til þess. Um samvinnu
íslands við önnur ríki NATO er fjallað í grein á bls.
15.
Samtíðarmaður
Jón Guðlaugsson, eigandi og forstjóri sælgætisgerð-
arinnar Opal, stundar iðnrekstur, sem í vök á að
verjast öðrum fremur vegna harðnandi samkeppni
frá erlendum framleiðendum. Jón hóf störf í sæl-
gætisgerð sem sölumaður fyrir Víking, en árið 1944
stofnaði hann Opal ásamt tveimur félögum sínum. í
viðtali við Jón er víða komið við, en sérstaklega
fjallað um horfurnar fyrir sælgætisiðnaðinn innlenda
og stöðu íslenzks iðnaðar almennt.
Greinar og viðtöl
I þessum efnisflokki birtist nú meðal annars grein
eftir Bergþór Konráðsson, viðskiptafræðing, þar sem
hann greinir frá athugunum, sem gerðar hafa verið
í Bandaríkjunum á högum starfsfólks á vinnustöðum,
og þá einkanlega með tilliti til þeirrar grundvallar-
spurningar, hvort það væri ánægt í starfi eða ekki.
Athyglisvert er, að starfsmenn láta yfirleitt í ljós
óskir um betri aðbúnað á vinnustað og innihaldsrík-
ara starf fremur en að krefjast hærri launa.
Bílar 1974
Árgerðir 1974 af hinum ýmsu bilategundum eru
komnar til landsins. Blaðið kynnir að þessu sinni
margar þeirra með upplýsingum, sem aflað hefur
verið hjá bílaumboðum í Reykjavík.
Efnisyfirlit:
í STUTTU MÁLI ....... 9
ORÐSPOR ............. 11
Island
Könnun á liögum heildverzlunar 13
ísland og Atlantshafsbandalagið 15
Útlönd
Heildarfæðuframleiðsla heims-
ins minnkar................. 21
Mannrán og lausnargjöld....... 23
Samtíðarmaður
Jón Guðlaugsson, forstjóri Sæl-
gætisgerðarinnar OPAL .... 27
Greinar og viðtöl
Orkuskortur .......... 35
Þjónusta
Bæta þarf þjónustu með aukinni
fræðslu.............. 43
Er starfsfólk ánægt?
Verður ánægja þess metin? .... 47
Bílar
Nýir bílar á markaðinum. 51
*
A markaðnum
Skrifstofutæki ....... 61
Fyrirtæki,
vörur, þjónusta
Bílrúðan h.f................. 71
Smyrill h.f.................. 73
Rekstrartækni s.f............ 75
Hcffell s.f.................. 77
Þrír veggskildir ............ 77
UM HEIMA OG GEIMA............ 79
FRÁ RITSTJÓRN ............... 82
5
FV 11 1973