Frjáls verslun - 01.11.1973, Síða 51
BÍLAR 1974
Frjáis verzlun kynnir úrval bifreiða á markaðnum og birtir helztu
upplýsingar um þær
TOYOTA-UMBOÐIÐ h.f.,
Höfðatúni 2, hefur átt hvað
drýgstan þátt í því að kynna
japanska fólksbíla hér á landi
og það með góðum árangri.
Toyota-bílar eru framleiddir
hjá Toyota Motor Co. og er
þetta merki eitt sigursælasta
bílamerki nútímans. Meðal
þeirra bíla, sem Toyota-umboð-
ið býður íslenzkum ökumönn-
um, er Toyota MKII 2000, sem
framleiddur er bæði 4ra dyra
og 2ja dyra „hard top“. í bíln-
um eru 113 ha. vél, sem eyðir
ca. 10-11 lítrum á 100 km.
Toyota MKII 2000 flytur 5
manns og litirnir, sem eru á
boðstólnum eru milli 7-10. Hæð
lægst frá jörðu er ca. 18 cm.
Frá Toyota koma fleiri gerðir,
eins og t. d. Carina 600 og
Corolla 1200. Bílarnir eru vel
búnir öryggistækjum og eru
traustlega hannaðir. Carina
1600 kostar ca. kr. 507.000, en
það er 2ja og 4ra dyra bíll
með 103 ha. vél, en Corolla
kostar kr. 448.000 og er einnig
2ja og 4ra dyra með 73 ha.
vél.
HEKLA h.f.,
Laugavegi 170-72, er eitt
stærsta bílaumboð landsins,
sem um árabil hefur flutt
Volkswagen bíla til íslands.
Nýjasti bíllinn frá VW er
Volkswagen Passat, sem fram-
leiddur er bæði sem 2ja og 4ra
dyra 5 manna fólksbíll. Passat
L kostar hér frá ca. kr.
542.000. Bíllinn er meði fram-
hjóladrifi og vatnskældri vél.
Vélastærðir eru þrjár: 60, 75
og 85 ha. Din Verksmiðjurnar
gefa upp, að bíllinn eyði 9 lítr-
um á 100 km. Hægt er að
velja um 16 mismunandi liti.
Mjög margir aukahlutir eru
í boði í þessari nýtískulegu
gerð, eins og t. d. litað gler,
hituð afturrúða, dráttarkrókur,
sólþak, sjálfskipting og m. fl.
Verksmiðjurnar binda miklar
vonir við Passat-bílinn og hafa
vandað alla hönnun hans sér-
staklega mikið.
Toyota-fólksbílar, sem nýkomnir eru til landsins.
WV Passat er nýjasti fólksvagninn, sem vekur mikla athygli.
FV 11 1973
51