Frjáls verslun - 01.11.1973, Blaðsíða 75
Rekstrartækni s.f
Aukin starfsemi með tilkomu
nýrrar IBIVI tölvu
Hjá Rekstrartækni s. f. Skip-
holti70 eru reiknuð út launfyr-
ir um (»00 launþega á viku.
Fyrirtækið var stofnað á síð-
asta ári og eru eigendur þess
Kristján Sigurgeirsson og Gísli
Erlendsson, rekstrartæknifræð-
ingar. Starfsemi fyrirtækisins
er vinnuhagræðing, skipulagn-
ing og áætlanagerð.
Upphaflega voru verkefni fyr-
irtækisins bundin við frystihús-
in og sá það um uppsetningu og
eftirlit með bónuskerfum og
framleiðslu og auk þess áætlan-
ir vegna endurbygginga og end-
urskipulagninga frystihúsa.
Fyrirtækið sér ennfremur um
launaútreikninga, bónusút-
reikninga og útreikninga á
framlegð fyrir frystihús.
Nú hafa átt sér stað nokkrar
breytingar hjá Rekstrartækni
og hefur starfsemi fyrirtækisins
verið aukin. Fyrirtækinu er nú
skipt í tvær deildir, tæknideild
og reiknideild.
Hjá -tæknideildinni eru unnin
ýmis verkefni er lúta að ýms-
um atvinnugreinum s. s. ver'k-
efnum í fiskiðnaði, kjötiðnaði,
fataiðnaði, trésmiðjum og
brauðgerð. Deildin sér einnig
um skipulagningu á vinnslu
loðnu, en nú eru frystihúsin í
óða önn að undirbúa frystingu
loðnu fyrir næstu loðnuvertíð.
Deildin sér einnig um uppsetn-
ingu bónuskerfa í frystihúsum.
Þá er eitt af verkefnum
tæknideildarinnar að skipu-
leggja vinnslurásir og gera
kostnaðaráætlanir fyrir mörg
fyrirtæki m. a. ný frystihús.
Reiknideildin hefur yfir að
ráða tölvu af gerðinni IBM syst-
em 3, og með aðstoð hennar tek-
ur deildin að sér verkefni á sviði
launaúrvinnslu, bónusúr-
vinnslu, útreikninga á fram-
legð og samanburð á afkomu
hliðstæðra fyrirtækja.
Fyrirtækið hefur yfir að ráða
mjög fullkomnum forskriftum,
þannig að vinnslan getur orðið
að mjög miklu leyti sjálfvirk.
Tölvan hefur innbyggðar marg-
ar af þeim upplýsingtun, sem
þarf til bónusvinnslu, t. d. ef
rangt fiskmagn hefur verið veg-
ið til einhvers starfsmanns
frystihússins, þá gerir tölvan
sjálfkrafa athugasemd við það.
Fyrirtækið fær inn upplýs-
ingar um nýja starfsmenn, s. s.
nafnnúmer, heimilisfang, vinnu-
tíma og frádráttarliði. Síðan
reiknar tölvan út launin og skil-
ar þeim á sérstakan iista, sem
er yfirfarinn af rafreiknideild-
inni. Launaseðlarnir eru skrif-
aðir út eftir að farið hefur ver-
ið yfir þá.
Tölvan skrifar sjálfkrafa eft-
ir því sem við á t. d. útborgunar-
lista til gjaldkera, myntlista,
ávísanir, innleggslista til banka
um einstaka launþega, skyldu-
sparnaðarlista, lífeyrissjóða-
lista, skattayfirlit, orlofsupp-
gjör til póstsins, frádráttarlista
og uppgjör opinberra gjalda.
Tölvan geymir þessar upplýs-
ingar til áramóta er hún skrifar
út launaseðla til skattsins. Á
tveggja vikna fresti gerir vélin
yfirlit fyrir frystihúsin um nýt-
ingu fisks, vinnulaunakostnað,
eftirstöðvar rekstursins upp í
fastan kostnað, samanburð milli
sambærilegra frystihúsa o. fl.
Úrvinnsla þessi stuðlar mjög
að bættum vinnuaðferðum auk
þess sem hún er hagkvæmari
og öruggari fyrir viðskiptavini
fyrirtækisins.
í tæknideildinni lijá Rekstrartækni h.f. er unnið að margþættum
verkefnum. Þar eru skipulagðar vmnslurásir fyrir ný frystiliús
svo að eitthvað sé nefnt.
FV 11 1973
75