Frjáls verslun - 01.02.1975, Page 17
EFTA — samstarf iö:
Fríverzlunin nauðsynlegri
en nokkru sinni áður
Grein eftir George R. Young, ráðgjafa Fríverzlunarsamtaka Evropu, EFTA
Augljóslega munu hinar
miklu verðbreytingar á heims-
markaði 'hafa víðtæk áhrif þeg-
ar til le-ngdar lætur. Markaðir
í þeim löndum, sem framleiða
olíu og önnur hráefni fá aukið
gildi í framtíðiinni og aukin
hlutdeild þeirra í útflutnings-
tekjum heimsins munu endur-
speglast í stærri skerf af heild-
arinnflutningsverzluninni.
Talsverður tími á þó eftir að
líða áður en þetta gerist og
sölumenn iðnaðarþjóðanna
geta ekki búizt við áberandi
fleiri pöntunum í bráð. Eftir-
spurn flestra oliuframleiðslu-
landanna getur ekki vaxið
ýkja ört og engan veginn að
sama marki og útflutningstekj-
ur þeirra hafa hækkað. Þó að
í minna mæli sé, á þetta líka
við um framleiðendur annarra
hráefna.
A næstu árum munu því al-
þjóðaviffiskipti verða að upp-
byggingu til mjög svipuð og
áður. Iðnaðarþjóðirnar eiga eft-
ir að gera beztu viðskiptin hjá
hvorri annarri sem fyrr. Þær
verða að kaupa sér frest með
því að jafna olíuhallann með
lánum frá olíuframleiðendum
en vinna jöfnum höndum að
ráðstöfunum til að draga úr
mikilvægi olíu við orkufram-
leiðslu sína.
NAUÐSYN
FRÍVERZLUNAR.
Séði í þessu ljósi er áfram-
hald frjálsra viðskiptahátta
lífsnauðsyn fyrir iðnaðarþjóð-
irnar. Þær verða fyrir alla
muni að forðast einhliða að-
gerðir til að takmarka aðgang
að markaði sínum og auka
þannig vanda nágranna sinna.
í fyrra m'átti sjá glögg dæmi
þessa. ítalir, og síðar Danir, á-
kváðu að draga úr innflutn-
ingi og vonuðust um leið til
að útflutningur þeirra sjálfra
ykist. Sem betur fer þóttu þó
önnur ráð hyggilegri. Ríkis-
stjórnir sáu fram á, að vanda-
málin voru of stórkostleg til
þess að nokkur von væri til að
þau leystust með viðskiptahöft-
um. Hinn 30. mai gaf Efna-
hags- og framfarastofnun Ev-
rópu, OECD, út yfirlýsingu,
þar sem ríkisstjórnir aðildar-
landanna lögðu áherzlu á
nauðsyn fulirar samvinnu til
þess að takast á við aðsteðj-
andi vanda um leið og þær
höfnuðu einhliða og ólíkum
Aðalstöðvar EFTA í Genil Þar er unnið kappsamlega að því að
ryðja úr vegi ýmsum hindrunum, sem enn hamla fríverzlun.
FV 2 1975
17