Frjáls verslun - 01.02.1975, Page 21
Flugrekstur
8AS - norrænt stórveldi, sem
víða kemur við sögu
Veltan 5 milljarðar norskra króna í ár.
Dótturfyrirtæki og önnur tengd alls 50 talsins
Engiunv blöSum er um það að fletta, að hagur margra flugfclaganna í heiminum er bágborinn ,um
þessar mirndir og hefur farið' versnandi með hæk> uðu olíuverði og minna ráðstöfunarfé, sem almenn-
ingur hefur á milli handa vegna efnahagsörðugleikanna. SAS-flugfélagið norræna hefur þó sloppið
mjög vel enn sem komið er og eru ástæðurnar m.a. hagkvæmir samningar imi eldsneytiskaup til langs
tíma, sem félagið gerði skömmu áður en oliukreppan svonefnda skall á, ágæti samstarfssamn-
ingar við önnur flugfélög, og svo hitt, að SAS gerir ýmislegt annað en að senda flugvélar hcimsálfa á
milli.
Rekstrarlegur grundvöllur
félagsins er mjög breiður og því
er ástæða til að skýra nokkuð
nánar frá þessu stórfyrirtæki,
sem á hagsmuna að gæta miklu
víðar en í fljótu bragði gæti
virzt.
VELTAN 5 MILLJARÐAR
NORSKRA KRÓNA.
í erindi, sem Knut Hagrup,
aðalforstjóri SAS, flutti í Björg-
vin fyrir nokkru, kom meðal
annars fram, að velta SAS á
þessu ári er áætluð 5 milljarðar
norskra króna. Félagið gegnir
líka afar veigamiklu hlutverki
sem vinnuveitandi í Dan-
mörku, Noregi og Svíþjóð og er
talið að á annað hundrað þús-
und manns í þessum löndum
hafi beint eða óbeint atvinnu af
starfsemi SAS og öðrum flug-
rekstri í Skandinavíu.
Fjármagnsþörfin hjá félaginu
er nokkuð álitleg á skandi
naviska vísu en á yfirstandandi
fjárhagsári nema fjárfestingar
í nýjum flugvélum, varahlut-
um, verkstæðum og hótelum o.s.
frv. 130 milljónum dollara og á
árunum 1976/1977 er gert ráð
fyrir fjárfestingum að upphæð
125 millj. dollara. Á síðari árum
hefur SAS skilað hagnaði, að
meðaltali um 20 millj. dollara á
ári, miðað við núverandi gengi.
Helmingurinn hefur verið
greiddu til móðurfélaganna,
sem að SAS standa, þ.e. gömlu
flugfélaganna í Danmörku,
Noregi og Svíþjóð. Af þessu til-
efni hafa menn spurt, hvort
SAS hafi náð sinni ,,réttu“
stærð.
10% AUKNING
NAUÐSYNLEG Á ÁRI.
Knut Hagrup segir, að miðað
við árangurinn megi segja að
stærð SAS hafi verið nokkurn
veginn rétt, en með þeirri upp-
byggingu, sem þegar er fyrir
hendi geti félagið enn vaxið
talsvert og verið áframhaldandi
virkt. Markaðsástandið og ýmis-
legt annað hefur þarna stór-
vægileg áhrif á. Til þess að
mæta kostnaðarhækkunum
verður félagið að auka fram-
leiðsluna um 10% á hverju ári,
helzt meira.
Stórrekstur getur líka náð
- & 4'..-'i. V '7-r. '-'r'- m
[ j • -1
Nýjasti far-
kostur SAS-
breiðþotan DC
-10. Samvinna
var höfð við
þrjú önnur
flugfélög, 'þeg-
ar þessi flug-
vélategund
var pöntuð.
Með því móti
hafa þau öll
sparað sér
veruleg út-
gjöld.
FV 2 1975
21