Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1975, Page 28

Frjáls verslun - 01.02.1975, Page 28
lækka á næturnar undir venju- legum kringumstæðum. Sérfræðingarnir segja, að andleg geta og almenn hæfni sé minni yfir nóttina, en tölu- lega var ekki hægt að sýna fram á minni framleiðni í næt- urvinnu. Hitt er þó greinilegt, að slysatíðnin er meiri þá en á daginn. Á það er bent, að flest'r vaktavinnumenn eyði meira en hálfri ævinni í kerfi, sem ekki semur sig að háttum samfélags- ins í kringum þá. Höfundar skýrslunnar hvetja t>l þess, að meiri gaumur verði gefinn en áður að þessu óeðlilega ástandi. Sums staðar hefur þó lifnað- arháttum heilla byggðarlaga verið breytt nokkuð til að koma til móts við þarf'r vaktavinnu- manna. Þess háttar ráðstafanir eru þó af mjög skornum skammti, þegar þess er gætt, að 30% handverksmanna í brezk- um framleiðsluiðnaði vinna á vöktum, eins og fram kemur í skýrslunni. Næturvaktirnar eru verstar. Það eru ekki bara erf'ðar heim- ilisástæður, sem skapast af því að eiginmaðurinn er að vinna á nóttunni á meðan fjölskyldan lifir ,,eðlilegu“ lífi og starfar yf'r hábjartan daginn. Vanda- málin er einnig að finna í tengslum við sjálfa vinnuna. Mötuneyti starfa ekki nema að takmörkuðu leyti og slysahjálp er stórum minni en á daginn. Þá eru samgönguerf'ðleikar líka fyrir hendi. Ungir og ókvæntir menn kvarta sárast undan óþægileg- um hömlum, sem vaktavinnan hefur á félagslíf þeirra og kem- ur þetta reyndar bezt fram í tíðum fjarvistum þeirra frá vinnu. Stór hluti vaktavinnumanna á Bretlandi eru menn, sem eru að „koma undir sig fótunum". Dæmigerður vaktavinnumaður í bílaiðnaðinum er kvæntur, 30 - 45 ára, skuldum vafinn og vinnur á vöktum ,,bara vegna peninganna.“ MINNI FJARVISTIR EN Á MEGINLANDINU E'nn meginmunurinn á starfs- manni í brezka bílaiðnaðinum og starfsbróður hans á megin- landinu er sá að hinn brezki stundar starf sitt lengur og er sjaldnar fjarverandi. í skýrsl- unni kemur fram, að há tíðni fjarvista og m'kil velta á vinnu- markaðinum á meginlandinu eigi að nokkru leyti rót sína að rekja til þess hve margar stærstu bílaverksmiðjurnar hafa bráðabirgðastarfskraft í þjónustu sinni, útlend'nga og unga menn með fátt skyldulið. Aftur á móti er meiri stöðug- leiki í starfsmannahaldi brezku verksmiðjanna og fjarvistir eru aðe'ns 5 - 7 % af heildarvinnu- tíma. Þar sem skýrslan fjallar um aukna áherzlu sem nú er lögð á vaktavinnukerfið, benda höf- undar á að um leið og ætlast sé til meiri arðsemi fyrirtækjanna, hafi starfsmennirnir líka sett fram kröfur um styttri vinnu- viku og lengra orlof. Nú er verið að gera tillögur um breytt fyrirkomulag vaktavinnunnar svo að komið verði að nokkru leyti til móts við hagsmuni beggja aðila. Sumir forstöðu- menn fyrirtækja og leiðtogar verkalýðsfélaga í bílaiðnað- inum hafa velt því fyrir sér, hvort of mikil áherzla sé lögð á hærra kaup fyrir vaktavinnu- menn. Margir telja breytingar, er fælu í sér aukin hlunnindi fyrir vaktavinnu til vexoilegra bóta. Hugmyndir eru uppi um lækkaðan eftirlaunaaldur, sér- stök sjúkragjöld, styttri vaktir og breytilegri hlé á vinnunni. Byggingafélagið Brúnás hf. EGILSSTÖÐUM Skrifstofan, sínii 1302 Framkv.stj., sírni 1340 ÖNNUMST HVERSKONAR BYGGINGARFRAMKVÆMDIR OG AÐRA VERKLEGA ÞJÓNUSTU. REKUM TRÉSMIÐAVERKSTÆÐI. Framleiðum og flytjum inn TVÖFALT EINANGRUNARGLER. Aðalumboð fyrir MÁLNINGU H.F. Seljum allar framleiðsluvörur verksmiðjunnar, ]xar á meðal úti og inni, í tónalitum. Ennfremur umboð fyrir iSPAN-einangrunargler. FRAMLEIÐUM H ARÐ VIÐ ARHURÐIR OG ÞILJUR. SELJUM OG Utvegum allskonar BYGGINGARVÖRUR. LEIGJUM STEYPUBIFREIÐAR OG VINNUVÉLAR. 28 FV 2 1975

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.