Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1975, Page 44

Frjáls verslun - 01.02.1975, Page 44
Fyririaeki, Iramlciðsla IXiýjung hjá Flugfélagi Islands: * Odýrar helgarferðir í innanlandsflugi - með gistingu á nokkrum beztu hótelum landsins Með styttri vinnuviku hafa frístundir aukizt um helg- ar og auk þess er ekki óal- gengt orðið, að fólk reyni að taka sér stutt orlof yfir há- veturinn til tilbreytingar. Vilji menn nota tækifærið til að skreppa landshorna á milli getur Flugfélag íslands séð um flutningana, hvernig sem á- stand þjóðveganna kann að vera. Ekki er að vísu full- tryggt að fært sé loftsins vegu samkvæmt fyrirfram gei’ðum ferða'áætlunum en líkurnar eru miklar, svo miklar alla vega, að Flugfélagið hefur nú sam- ið sérstaka ferðaáætlun fyr- ir íslendinga, sem skreppa vilja i ódýrar vetrarferðir inn- anlands um helgar. Er þetta gert í samvinnu við nokkur beztu hótel á landsbyggðinni, sem opið hafa allt árið, og sömuleiðis helztu gistihús höf- uðstaðarins. TIL SEX MISMUNANDI STAÐA. Fyrir Reykvikinga er um helgarferðir til eftirtalinna staða að ræða: Akureyrar, Eg- ilsstaða, Vestmannaeyja, ísa- fjarðar, Húsavíkur og Hafnar i Hornafirði. Verða þær í boði fram á vor. Ferðirnar geta haf- izt á hverjum föstudegi eða laugardegi og standa til mánu- dags, eru því ýmist tvær næt- ur og þrír dagar eða þrjár nætur og fjórir dagar. Lág- marksdvöl er tvær nætur. Að sögn forráðamanna innaniands- flugs Flugfélags íslands er upp á þessar ferðir boðið til að auka á tilbreytingu í skammdeginu, gefa ibúum höf- uðborgarsvæðisins tækifæri tii að kynnast þróttmiklu athafna- lífinu á i^ndsbyggðinni og íbú- um oyggðarlaga úti á lardi kost á að koma til Reykjavik ur og taka þátt í menningar- og félagslífi, sem höfuðþorgin býr yfir umfram aðra staði á landinu. Sjálf dvölin á við- komandi stöðum er ekki skipu- lögð en skrifstofur félagsins veita upplýsingar um helztu viðbui'ði á sviði íþrótta og fé- lagastarfsemi, um leiksýningar og skemmtanir eftir því sem áhugi ferðafólksins beinist inn á þau svið. HÁLFT GJALD FYRIR BÖRN Hótelin, sem farþegar í þess- um sérstöku helgarferðum gista á eru Hótel KEA og Varðborg á Akureyri, Vala- skjálf á Egilsstöðum, Hótel Vestmannaeyjar, Hótel Mána- kaffi á ísafirði, Hótel Húsa- vik og Hótel Höfn í Hoi'na- firði. í verði ferðanna er innifalið flugfar báðar leiðir, gisting og morgunverður. Þannig kosta þriggja daga ferðir til Akur- eyrar kr. 6.250, Egilsstaða kr. 8.100, Vestmannaeyja kr. 4.980, ísafjarðar kr. 6.100 en fjögui'ra daga ferðir til Húsa- víkur 7.800 kr. og til Hafnar í Hornafirði 8.200 krónur. Börn innan 12 ára aldurs greiða hálft gjald. SKÍÐI, SKEMMTANIR OG SÖFN. Á Akureyri er miðstöð vetr- aríþrótta. Skíðalandið í Hlíðar- fjalli er geysivinsælt en margt er líka að sjá í söfnum bæjai'- ins, eins og minjasafninu, nátjt- úrugripasafninu, Nonnahúsi, Daviðshúsi og Matthíasai'safni. Skemmtanalíf er sagt með líf- legra móti á Akureyri. Kunn- ugir telja að Vestmannaeyjar gefi höfuðstað Norðurlands þó lítið eftir í því efni nú orðið, því að Hótel Vestmannaeyjar hefur opnað vinsælt diskótek, þar sem boðið er upp á allar tegundir veitinga. Á vegum hótelsins eru skipulagðar skoðunarferðir að gosstöðvun- um á Heimaey, 2-21/2 tíma ferðir. Þá er vandað fiskasafn í Vestmannaeyjum. Aðstaða til skíðaferða er með afbrigðum góð á ísafirði, skíðalyftur eru svo að segja við hóteldyrnar á Húsavík en þar í kaupstaðnum eru líka náttúrugripasafn, með Gríms- eyjarbangsanum fræga, og byggðasafn. Á Egilsstöðum og á Höfn í Hornafirði eru bíla- leigur, svo að auðvelt er að litast um í næsta nágrenni. Á þessum hótelum er að- staða til að taka á móti hópum til funda- og ráðstefnuhalds og færist slíkt í vöxt. LANDSBYGGÐARFÓLK TIL REYKJAVÍKUR. Fyrir ibúa á endastöðvum Flugfélags íslands utan Reykjavíkur og í nágrenni þeirra eru skipulagðar helgar- ferðir til höfuðborgarinnar eins og áður sagði. Þá er gist á Hótel Esju, Hótel Holti eða Hótel Sögu. Verð þessara ferða er mismunandi eftir stöðum. Til að gefa nokkra hugmynd um þau má geta þess að ferð frá Patreksfirði kostar t. d. 6.800 kr. með gistingu á Hótel Esju, 7.80Ó á Hótel Holti 44 FV 2 1975

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.