Frjáls verslun - 01.02.1975, Side 47
Vélsmiðjan
LOGI
Esjubraut — Sími 93-2122
Heimasímar: 1834, 1894
og 1861
önnumst allskonar
nysmiot i jarnidnaði
Sjáum um pípulagnir
í allar gerðir bygginga
LeitiS tilboða í stærri
og smærri verk
Hempel — skipamálning:
Kerfisbundin vörn
gegn ryði og tæringu
Hempel-skipamálningarverksmiðjurnar dönsku eru einu meiri-
liáttar verksmiðjurnar sinnar tegundar í heiminium, sem byggt
hafa upp framleiðslu- og sölukerfi um allan heim til vemdar verði-
mætum i skipaútgerðinni. Verksmiðjur Hempel og birgðastöðvar
eru á meira en 200 stöðum í heiminum.
Hjá Hempel hefur áherzla
verið lögð á virkt kerfi í fram-
leiðslunni í stað þess að einblína
á einstakar tegundir. í samræmi
við þetta eru vandamál við-
skiptavinarins könnuð ræki-
lega, svo að hægt sé að veita
þá verndun eigna og
tækja, sem hann þarf á að
halda. Skipulagning þessara
varnaraðgerða og tíðni þeirra er
partur af ráðgjafarstarfi, sem
tæknideild Hempel innir af
hendi fyrir viðskiptavinina án
endurgjalds. Þetta notfæra
skipaeigendur sér áður en samn-
ingar um nýsmíðar eru gerðir
og fá þegar ráðleggingar um
skipamálun, sem veitir lang-
varandi vörn gegn ryði, fúa og
tæringu.
SKIPULÖGÐ VÖRN
Skip eru ekki máluð tli þess
cins að ganga í augun á fólki og
kynda undir stolti eigendanna.
Skipamálningin gegnir fyrst og
fremst því hlutverki að veita á
hverjum tima beztu fáanlegu
vörn fyrir þau miklu verðmæti,
sem fjárfest eru í skipum um
þessar mundir. Saltið, hitabreyt-
ingar og óveður herja stöðugt á
ytra borð skipanna og bjóða
heim hættunni á ryði og tær-
ingu verðmæta. Þess vegna er
fyrirfram ákveðin og skipulögð
vörn gegn þessum skaðvöldum
afar mikils virði.
Hempel- fyrirtækið hefur
stöðugt verið að víkka út mark-
að sinn og fjölga birgðastöðv-
um, þannig að hvar sem leið
skipsins liggur um álfur, eru
Hempel-málningarvörur jafnan
tiltækar skammt undan með
skömmum fyrirvara.
í 90 LÖNDUM
J.C Hempel Skibsfarve-Fabrik
A/S var stofnuð 1955. Nú á
fyrirtækið yfir 20 verksmiðjur
og birgðastöðvar og söluumboð
eru rúmlega 200 í meira en 90
löndum. Til ársins 1970 hafði
fyrirtsekið aðalstöðvar sínar í
Kaupmannahöfn, með lagerum
cg verksmiðjum á Amager,
í Gladsaxe og Fríhöfninni. Nú
starfar fyrirtækið undir einu
þaki, ef svo má segja, í Lund-
tofte, nema hvað rannsóknar-
stofur eru enn á Amager og í
Kyndby á Sjálandi. Hjá Hempel
í Danmörku starfa nú 300
manns og enn fleiri erlendis.
FRAMLEIÐSLAN HÉR Á
LANDI
Árið 1932 hófst sala á
Hempel - skipamálningu fyrst
hér á landi fyrir milligöngu
Slippfélagsins i Reykjavík, sem
haíði þá dálítið magn af máln-
ingu á lager. Síðari hluta árs
1951 byrjaði Slippfélagið að
framleiða málningu samkvæmt
leyfi frá Hempel og verksmiðja
til þeirra nota var byggð í sam-
vinnu við Hempel - fyrirtækið í
Kaupmannahöfn. Upp frá því
jókst salan hér á landi stöðugt
cg augljós þörf varð á nýrri og
stærri verksmiðju. Bygging
hennar var hafin árið 1966 í
Dugguvogi 4 og er hún 1200
fermetrar á stærð. Með þessari
nýju verksmiðju batnaði öll að-
staða til málningarframleiðslu
til muna.
Talið er að 75% allrar skipa-
málningar, sem seld er hér-
lendis, sé frá Hempel. Þá má
líka geta þess, að Hempel máln-
ing er notuð á fleiri sviðum, t.d.
á margar tegundir byggingar-
krana, geyma, brýr og alls kon-
ar mannvirki úr stáli. Meðal
annars eru ljósastaurarnir á
götum Reykjavíkur málaðir
með Hempel - málningu.
FV 2 1975
47