Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1975, Page 48

Frjáls verslun - 01.02.1975, Page 48
ÓDÝR, ELEKTRÓNÍSKUR PENINGAKASSI — Bandarískt fyrirtæki flytur nú út fimm mismunandi nýjar ger'ðir af elektrón- ískum peningakössum til Astralíu og Belgíu. Þessir kassar gefa ekkert hljóð frá sér og ganga fyrir rafhlöð)u. Ýmsir möguleikar eru í sambandi við mismunandi færslur og auðVelt er1 aði gera Ieiðréttingar. Sumar gerðirnar hafa sjálfvirkan búnað til að relkna út söluskatt m.a. Þessir kassar eru 27 kíló á þyngd, 48 sentimetrar á hæð og breidd. Þeir kosta milli 1000 og 2000 dollara, en framr leiðandi er R.C. Allen Inc., Grand Rapids, Michigan. IMÝJUIMGAR BRUNNAR STEYPTIR A STAÐNUM - Tímasparnaður í byggingarframkvæmdum þýðir minni kostnaður. Fyrirtæki, sem sérhæfir sig í nýjungum á sviði byggingartækni hefur sent frá sér létt og lipur plastmót til þess að steypa brunna á ræsum og lögnum af víðustu gerðum. Brunnurinn er steyptur á stað- num á minna en einum degi. Ekki er því lengur þörf á stór- um flutningahílum eða lyftur- um til að koma brunnum á sinn stað. Tveir menn geta sett mótin saman á tveim klukkustundum og síðan er steypu dælt í þau frá steypubíl. Mótin kosta 4000 dollara og er,u fáanleg 1,3 met- rar eða 2 metrar í þvermál. Framleiðandi er Improved Construction Methods Inc., Box 685, Jacksonville, Arkansas. SPJALDGATARI - Fyrirtæki í Massachusetts flytur út ýmsar gerðir af léttiun og ódýrum tækjum til að útbúa gataspjöld. Eitt þeirra er Model 2600 Wright Punch, sem nota má til að fylla út alls konar gataspjöld fyrir skýrsluvélar til aflestrar. Algengast eru þó 80 - dálka kort. Að sögn framleiðandans má nota þetta tæki hvar sem er og það getur gert göt áj öll.um 960 gatastæðúm á spjaldinu. Tækin eru fáanleg með margs konar! sérútbúnaði og kosta frá 250 dollurum upp í 995 dollara. Seljandi er Wright Linie, ElectroMechanics Department, Warcester, Massachusetts. 48 FV 2 1975

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.