Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1975, Side 49

Frjáls verslun - 01.02.1975, Side 49
LÉTTUR BARNASTÓLL — Fyrirtæ-ki í Kentucky smiðar mjög létta stóla fyrir ungabörn og er,u þeir nefndir Taylor Tote - R. Stólana má leggja saman og eru þeir mjög með- færilegir og auðvelt að flytja þá milli staða. Meginuppistað- an eru stálrör og bakki úr nikkel, hvort tveggja krómhúð- að. Sæti og bak eru gerð úr blöndu nylon og vynils. Taylor Tote-R stólarnir kosta 10 doll- ara hver um sig en 8.95 stykk- ið ef keyptir eru minnst 100. Söluaðili er Frank F. Taylor Company, Box 636, Frankfort, Kentucky. SKRIFLEG SKILABOÐ SÍMLEIÐIS — Nú er hægt að handskrifa skilaboð og senda símleiðis á milli staða þannig að þau birtist viðtakanda um leið og 'þau eru færð í letur. Þetta er gert með' nýju tæki, sem framleitt er í Brctlandi. Um það eru sendar skriflegar orðsendingar, teikningar og tölulegar upplýsingar, bæði styttri vegalengdir, jafnvel innan húss með viðeigandi útbúnaði, eða þá lengri Iciðir um innanbæjar- eða langlínusímakerfið. Eina viðhald- ið, sem reglulega þarf að annast, eru skipti á pennafyllingum og pappírsrúllum í tækinu. Framleiðandi er Feedback Instruments Ltd., Crowborough, Sussex „GEIM - VASALJÓS“ - Við geimferðaundirbúning Banda- ríkjamanna varð til ný tegund af vasaljósum, sem fjöldafram- leiðsla er hafin á. Rafhlaðan í þessu tæki er mjög endingargóð og má nota liana í allt að fimm ár en stöðugt ljós getur hún gefið í allt að 20 klukkustundir ef því er að skipta. Þetta vasa- ljós missir ekki lileðslu, þegar það er í geymslu ónotað eins og gerist um venjuleg vasaljós. Smásöluverð geim- vasaljósanna er nú 7 dollarar í Bandaríkjun- um. Útflutning annast Van Osdol and Associates, Box 10355, Alexandria, Virginíu. PLASTSÖSKJUVÉLAR — í Bretlandi er hafin framleiðsla á vél, sem byr til öskjur, bakka og kassa fyrir alls kyns varn- ing, allt frá mátvælum til vara- hluta í vélar. Vélarnareru sjálf- virkar eftir að þær hafa verið hlaðnar plastplötunum. Skila þær umbúðunum límdum og til- búnum og geta afköst orðið 1000 stykki á mínútu eftir stærð um- búða. Þessar vélar eru ætlaðar umbúðaframleiðendum eða öðr- um iðnfyrirtækjum, sem vilja annast ,umbúðagerð fyrir afurð- ir sínar sjálf. Framleiðandi er Bowater Packaging Ltd. Port- land House, Stag Place, London. FV 2 1975 49

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.