Frjáls verslun - 01.02.1975, Qupperneq 49
LÉTTUR BARNASTÓLL —
Fyrirtæ-ki í Kentucky smiðar
mjög létta stóla fyrir ungabörn
og er,u þeir nefndir Taylor
Tote - R. Stólana má leggja
saman og eru þeir mjög með-
færilegir og auðvelt að flytja
þá milli staða. Meginuppistað-
an eru stálrör og bakki úr
nikkel, hvort tveggja krómhúð-
að. Sæti og bak eru gerð úr
blöndu nylon og vynils. Taylor
Tote-R stólarnir kosta 10 doll-
ara hver um sig en 8.95 stykk-
ið ef keyptir eru minnst 100.
Söluaðili er Frank F. Taylor
Company, Box 636, Frankfort,
Kentucky.
SKRIFLEG SKILABOÐ SÍMLEIÐIS — Nú er hægt að handskrifa
skilaboð og senda símleiðis á milli staða þannig að þau birtist
viðtakanda um leið og 'þau eru færð í letur. Þetta er gert með' nýju
tæki, sem framleitt er í Brctlandi. Um það eru sendar skriflegar
orðsendingar, teikningar og tölulegar upplýsingar, bæði styttri
vegalengdir, jafnvel innan húss með viðeigandi útbúnaði, eða þá
lengri Iciðir um innanbæjar- eða langlínusímakerfið. Eina viðhald-
ið, sem reglulega þarf að annast, eru skipti á pennafyllingum og
pappírsrúllum í tækinu. Framleiðandi er Feedback Instruments
Ltd., Crowborough, Sussex
„GEIM - VASALJÓS“ - Við
geimferðaundirbúning Banda-
ríkjamanna varð til ný tegund
af vasaljósum, sem fjöldafram-
leiðsla er hafin á. Rafhlaðan í
þessu tæki er mjög endingargóð
og má nota liana í allt að fimm
ár en stöðugt ljós getur hún
gefið í allt að 20 klukkustundir
ef því er að skipta. Þetta vasa-
ljós missir ekki lileðslu, þegar
það er í geymslu ónotað eins og
gerist um venjuleg vasaljós.
Smásöluverð geim- vasaljósanna
er nú 7 dollarar í Bandaríkjun-
um. Útflutning annast Van
Osdol and Associates, Box
10355, Alexandria, Virginíu.
PLASTSÖSKJUVÉLAR — í
Bretlandi er hafin framleiðsla
á vél, sem byr til öskjur, bakka
og kassa fyrir alls kyns varn-
ing, allt frá mátvælum til vara-
hluta í vélar. Vélarnareru sjálf-
virkar eftir að þær hafa verið
hlaðnar plastplötunum. Skila
þær umbúðunum límdum og til-
búnum og geta afköst orðið 1000
stykki á mínútu eftir stærð um-
búða. Þessar vélar eru ætlaðar
umbúðaframleiðendum eða öðr-
um iðnfyrirtækjum, sem vilja
annast ,umbúðagerð fyrir afurð-
ir sínar sjálf. Framleiðandi er
Bowater Packaging Ltd. Port-
land House, Stag Place, London.
FV 2 1975
49